Samhjól að morgni dags

Samhjólið sem ég tók í morgun.

Ég stillti klukku kl. 05:45 í gærmorgun og var búinn að skrá mig í Group Ride á Zwift. Ég svaf hinsvegar ekkert allt of vel og var búinn að vakna upp við hósta og var mökkstíflaður. Þegar klukkan hringdi voru mín fyrstu viðbrögð að slökkva, stilla hana á 07:00 og snúa mér á hina hliðina. Þannig lá ég í smástund áður en ég gaf sjálfum mér gott spark í rassgatið og kom mér fram úr.

Þegar ég var búinn að græja mig á hjólið og borða einn banana var ég orðinn alveg þokkalegur. Hópurinn sem ég var að hjóla með var í styrkleika D og þetta var því frekar rólegt (Z2). Kvef og tvær æfingar í fyrradag gerðu það hinsvegar að verkum að þetta var frekar krefjandi. En það var hrikalega gott að klára og ég ákvað að reyna að taka því bara rólega seinnipartinn í gær.

Hvort það var bara blessað kvefið eða viðbrigðin að vakna svona snemma tvo daga í röð, þá var ég alveg búinn á því seinnipartinn í gær. Ég rétt hafði orku í að koma heimilinu á réttan kjöl og var svo farinn í rúmið fyrir klukkan tíu. Ég svaf ágætlega í nótt en vaknaði með hóstakast kl. 01:30, fór framúr og fékk mér hálsmola og stíflusprey. Í dag líður mér þokkalega og ég er að vona að ég sé að ná úr mér þessum skít. 

Gömlu Brooks Ghost komnir með nagla.

Áður en ég fór í bælið í gær negldi ég gömlu Brooks skóna mína svo ég verði tilbúinn í vetrarfærið. Það er snjómugga hérna á Akureyri í augnablikinu og það er full ástæða til að vera við öllu búinn. Eftir vinnu í dag ætla ég að henda mér út í eitt gott hlaup og kannski gera smá æfingar heima.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap