Þriðjudagur til þreytu

Í blessaðri ræktinni.

Ég er búinn að vera eitthvað asnalegur í gær og í dag. Mér hefur ekki liðið sem best í vinnunni en það lagast heldur þegar ég kemst út í fríska loftið og heim til mín. Ég er ekki laus við bölvað kvefið og þetta virðist magnast upp á skrifstofunni. Augnþurrkur, sviði í öndunarfærum og nefstíflur. Ég er heldur ekkert allt of góður í maganum. Það eina sem ég veit er að loftið á skrifstofunni er verulega þurrt, rokkar í kringum 20% raka. Loftgæðamælingar benda ekki til þess að nokkuð annað sé að.

Svona hefur þetta verið í 2 vikur og ég er alveg búinn að fá nóg af þessu. En það eina sem ég get gert er að reyna að fara vel með mig, éta vel og reyna að fara ekki over board í æfingum.

Fyrir rúmu ári síðan setti ég upp upphífingastöng heima og ég hef verið duglegur við að nota hana þegar ég hef tíma, þegar æfingaplönin leyfa og ég er ekki í ræktinni. Þá tek ég gjarnan 5-10 endurtekningar og 3-4 sett. Hugmyndin á bakvið þetta var að reyna að horfa á magn umfram ákefð og reyna að vera alltaf jafnt og þétt að mjatla inn endurtekninum allt árið. Ég hef verið að gera það sama með armbeygjurnar- allt betra en ekkert og safnast þegar saman kemur. Allt í allt er ég búinn að taka 2700 upphífingar á þessum tíma en hef ekki haldið bókhald yfir armbeygjurnar.

Núna erum við að vinna í upphífingum í ræktinni og þá finn ég best hvað þetta hefur skilað góðum árangri. Þegar við erum að vinna með fáar endurtekningar þá er ég farinn að þurfa að hengja á mig býsna helvíti þungar ketilbjöllur til að finna eitthvað fyrir því. Eitthvað sem ég bjóst aldrei við að ég ætti eftir að geta.

Annars er frídagur í dag sem er gott. Á morgun er spáð miklu frosti og ætli ég reyni ekki að taka góða hjólaæfingu í staðinn fyrir að fara út að hlaupa. Síðan er bara eitthvað bland í poka, hlaup, hjól og lappaæfing í ræktinni á föstudag. Þetta er allt voðalega laust í reipunum hjá mér og kannski neyðist maður til að fara að gera aðeins formfastara plan fyrir hjólaæfingar ætli ég mér að vera í góðu standi næsta keppnistímabil.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap