Pása, frost og útstáelsi.

Orri og Þórður í jólagírnum.

Ég var á svipuðum stað í gær (föstudag) hvað pestina varðar og ákvað því að setja allar æfingar á hold. Og ég er búinn að ákveða að hvíla líka í dag og á morgun. Ég hendi mér svo í ræktina á mánudaginn og sé til eftir það hvort heilsan leyfi ekki smá hlaup og eitthvað hjól. Ég ætla samt að fara varlega af stað en reyna svo að taka feita viku 26. des - 1. janúar. Svo má ég ekki gleyma Vetrarhlaupi #3 miðvikudaginn 28. desember. 

Eftir jólafrí verð ég svo að fara að bæta við klukkustundum á hjólinu. Mig langar samt að halda inni fótaæfingum í ræktinni og spurning hvort ég reyni að semja við Egil í TFW um að vera bara á föstudögum. Sjáum hvort eða hvernig það gengur.

Í gær skellti ég mér að hitta Orra og Þórð. Við kjöftuðum frameftir kvöldi en kíktum svo aðeins á Backpackers og R5. Þetta var ljómandi fínt og góð tilbreyting að komast aðeins út á meðal fólks. Ég hef ekki verið duglegur við það.

Í dag er heilsan svona la la. Ég er með smá stíflur og væga hálsbólgu. Maginn á mér er reyndar á hvolfi en spurning hvort það lagist ekki ef ég skelli í mig samarin og leggi mig í klukkutíma.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap