Komin í sveitina
Okkur fannst eitthvað svo jólalegt að stilla Perlu gömlu upp fyrir framan jólatréið þegar við vorum búin að skreyta það. |
Ég stóð við að taka frí úr vinnu í dag [Þorláksmessu] og hef í rauninni bara ekkert hugsað um vinnuna. Mikið hefur það verið gott að geta gleymt henni eftir allt stressið síðustu daga. Ég hefði alveg getað potast í einhverjum málum en það voru allt verkefni sem hanga á svo mörgum og fólk er komið út og suður. Ég ákvað því bara að njóta dagsins með börnunum og gefa þeim smá tíma. Við fórum með Hörpu, Þórði og Kára í skötu á Bryggjunni og svo brunuðum við heim í sveit þar sem við erum búin að vera að græja fyrir jólin, skreyta og borða góðan mat.
Heilsan er öll að koma til og steraspreyið sem læknirinn ávísaði á mig virðist ætla að vera nóg til að hreinsa á mér hausinn. Hvíldarpúlsinn er orðinn er orðinn eðlilegtur, nefstíflurnar að hverfa og ég bara í fínu standi. Það er ekki slæm jólagjöf.
Ég skellti mér í ræktina í gær og tók erfiða lappaæfingu. Ég er búinn að vera með smá strengi í dag og því ákvað ég bara að hvíla. Ég hafði s.s. líka alveg nóg fyrir stafni. Ég ætla að skella mér út að hlaupa á morgun. Það spáir -10°C frost þannig það verður örugglega hressandi. Ég stefni að því að fara 15 km ef lappirnar leyfa. Ég hugsa að ég hvíli á jóladag en svo gæti verið að ég færi í 100 km group ride á á Zwift annan í jólum með einhverju fólki úr HFA.
Annars óska ég bara öllum gleðilegra jóla!!!
Ummæli