Kleppur

Skógarþröstur eftir Helga í Kristnesi.

Það gerist orðið ekki oft að ég gleymi blogginu í 3 daga en það gerðist núna. Ástæðan er sú að það er búið að vera algerlega sturlað að gera hjá mér. Vinnan er alger Kleppur þessa dagana og ofaná það bætist allt jólastússið og börnin komin í jólafrí.

Síðustu 2 daga hef ég farið í vinnuna fram að hádegi en tekið restina af deginum heima. Á sama tíma hefur húsið verið fullt af börnum sem maður hefur þurft að líta eftir og fóðra. Það hefur verið krefjandi að koma æfingum fyrir inn í planið en ég hef látið það ganga

Ég fór í ræktina á mánudaginn, í gær tók ég 1,5 klst endurance og svo tók ég 3x8mín threshold æfingu í dag sem losaði klukkustund í heildina. Ég hef ekki tekið threshold æfingu lengi (ekki frekar en FTP test) þannig ég renndi nokkuð blint í sjóinn með þetta. Ég var í 235 vöttum í th-settunum og það gekk bara alveg prýðilega. Hjartslátturinn var í 150-155 í settunum og þetta ætti því að vera nokkuð nálægt því að vera threshold hjá mér. En ég þarf endilega að taka FTP test sem fyrst til að vera viss um hvað ég er að gera.

Á morgun er síðasti dagur í vinnu fyrir jól og það stefnir í epíska geðveiki. Eftir það ætla ég í ræktina og svo þarf ég að taka okkur til fyrir ferðina austur í sveit. Á Þorlák förum við Harpa og börnin með Þórði, Kára og Helgu systur á Bryggjuna í skötu. Svo mega jólin koma fyrir mér. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap