Fyrsti í nöglum
Brooks skórnir mínir eftir fyrstu kílómetrana á nöglum. |
Í dag er ég bara nokkuð hamingjusamur og bjartsýnn. Ég ætla að fara kátur inn í helgina og reyna að jólastússast eitthvað með börnunum. Dagbjörtu Lóu finnst ekki nægilega góður gangur í þessu hjá okkur og vill fá upp meira af ljósum og skreytingum, ekki síðar en strax. Ætli við byrjum ekki bara í kvöld. En ég er samt að reyna að létta af mér pressunni um að hafa allt fullkomið og í einhverri rútínu. Við gerum þetta með okkar hætti, gerum okkar skrítnu hefðir, á okkar tíma og okkar hraða.
Ég skellti mér út að hlaupa í gær í nýnegldu skónnum og það var hreinlega frábært að hafa naglana undir. Það er svo mikil dempun í þessum skóm að maður finnur ekki neitt fyrir neinu, ekki einu sinni þegar maður var á hreinu malbiki. Botninn í þeim er reyndar svo mjúkur að ég hafði áhyggjur af því að þeir myndu spólast úr, en það gerðist allavega ekki í þetta skiptið. En hlaupið var gott. Það birti svo mikið við að fá snjóinn, lítið svifryk og þetta var bara voðalega jólalegt og skemmtilegt. Ég fór 6 km á 5:54 min/km og leið bara drulluvel. Fann ekki fyrir þessu og lungun eru bara orðin fín.
Nú er ég að fara að henda mér í ræktina og í fyrramálið ætla ég að hjóla slatta. Svo er að sjá til hvort veðrið bjóði ekki upp á langhlaup á sunnudaginn. Og eins og ég kom inn á í upphafi þá verður restinni af helginni eytt í jólagjafainnkaup, skreytingar og eitthvað slíkt.
Ummæli