Bjargast fyrir horn

Garmin Forerunner 955 Solar.

Síðan ég tók jólahlaupið á aðfangadag þá er ég búinn að vera frekar slæmur í hægra hnéi og hægri mjöðm. Þetta er búið að vera það slæmt að ég var farinn að hafa áhyggjur af því að ég gæti átt erfitt með að hjóla líka. En ég tók klukkutíma æfingu á hjólinu í gær og fann ekki fyrir neinu. Ekki nóg með það, þegar ég var búinn með æfinguna þá fann ég nánast ekkert til í hnéinu þegar ég labbaði niður stiga. Hreyfingarnar á hjólinu virðast því bara gera hnéinu og mjöðminni gott, sem er mjög jákvætt. 

Þegar ég var að labba heim frá Hörpu í morgun prufaði ég að skokka aðeins en þá fékk ég stingandi verk í hnéið og sá ekki fram á annað en að þurfa að sleppa Vetrarhlaupinu á morgun. Þegar ég var að gúffa í mig morgunmatnum fór ég að skoða hvort það væri búið að auglýsa hvaða leið ætti að fara þá komst ég að því að næsta hlaup er ekki fyrr en í lok janúar. Þetta er þvílíkur léttir og nú fæ ég mánuð til að vinna mig upp í rólegheitum og koma mér í stand. Ég mun leggja áherslu á stutt hlaup, teygjur og æfingar sem Helga ávísaði á mig.

Æfingar vikunnar.

Eftir að ég fékk þessar gleðilfréttir kíkti ég inn á Training Peaks og endurskoðaði æfingarnar fyrir vikuna. Ég tók út öll hlaup þangað til á sunnudaginn, en þá ætla ég að prufa að skokka smá. Áður en ég geri það ætla ég að rúlla vel og teygja. Annars verður áherslan á hjól og lyftingar og ég eyk tímafjöldann nokkuð frá síðustu viku.

Ég fékk gjafabréf í Garminbúðina í jólagjöf og peninga frá pabba, Hafrúnu og frá vinnunni. Ég var búinn að ákveða að uppfæra úrið mitt og fá mér Garmin Forerunner 955. Það úr getur skutlað öllum lyftinga- og hlaupaæfingum beint inn á Training Peaks og er með mikla möguleika þegar kemur að svefnmælingum, stressi og endurheimt. Mig reyndar vantar líka hjólatölvu fyrir sumarið en ég hugsa að ég láti þetta hafa forgang enda ekki alveg búinn að gefast upp á hlaupunum ennþá.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap