Að reyna að ná mér á rétt flot
Það er alltaf hressandi að hjóla í vinnuna, alltaf gaman og alltaf gott! Bara vera vel búinn og jafnvel með eitthvað gott í eyrunum. |
Börnin komu til mín í gær og það var ótrúlega gott að fá þau heim eftir langa fjarveru. Við skelltum okkur í Krónuna og keyptum sushi, ég fór með Brynleif í klippingu og svo fórum við á smá þvæling. Þegar við komum heim höfðum við það kósý, horfðum á jóladagatalið og borðuðum fyrir framan sjónvarpið.
Ég ætlaði að ná æfingu í gær en í þetta skiptið ákvað ég að gefa börnunum forgang. Ég sleppi eiginlega aldrei æfingum en maður má ekki láta þær bitna á fjölskyldunni. Það er margt annað í lífinu sem skiptir meira máli og maður verður að gera sitt besta við að láta þetta ekki koma niður á börnunum. Ég nenni ekki að vera gaurinn sem hreytir í börnin vegna þess að hann er pirraður út af því að allt er á hvolfi þar sem hann þarf að æfa svo mikið það er ekki tími í neitt annað. Eða geyma þau í símanum tímunum saman á meðan ég sit á hjólinu. Ég ætla að reyna að vera duglegur að vera með þeim í þessum mánuði og gera jólin eftirminnileg.
Ég er enn ekki orðin góður af kvefinu og er hálf druslulegur. Ég drullaði mér samt á fætur kl. 05:45 og tók klukkutíma æfingu á hjólinu. Mig langaði reyndar út að hlaupa en lungun á mér eru ekki nægilega góð til þess. Æfingin var frekar slök hjá mér en mér leið vel þegar ég var búinn. Ég held ég þurfi að fara að vera duglegri við að taka svona morgunæfingar þar sem dagurinn nýtist mikið betur og ég hvort sem er yfirleitt farinn snemma í bælið.
Ég ætla að skella mér í ræktina seinnipartinn og ef ég verð skárri af kvefinu á morgun þá ætla ég að henda mér út að hlaupa á morgun.
Ummæli