Vikulokin
Það er ágætis gangur í æfingum hjá mér og hér má sjá að þær skiptast nokkuð jafnt niður á rækt, hlaup og hjól. |
Ég skellti mér út áðan og tók langa hlaupið mitt. Ég var nýlagður af stað þegar ég fattaði að ég gleymdi að setja stuðningsböndin með silicon-púðunum undir hnéskeljarnar. Ég nennti hinvegar ekki að snúa við og ákvað bara að láta það ráðast hvort ég myndi þola þetta.
Ég var búinn að setja í planið að fara 10% lengra en á síðasta sunnudag og það voru því 12 km á dagskrá. Ég var léttur á mér allt frá byrjun og hélt auðveldlega hraða upp á 5:50 min/km án þess að púlsinn færi mikið upp fyrir 120. Ég hélt því bara þeim hraða og þetta gekk vonum framar.
Þegar ég var kominn rúma 9 km var ég farinn að þreytast aðeins og fljótlega eftir það fékk ég smá sting í hnéin. Það varð þó aldrei það mikið að það stoppaði mig. Hlaupið endaði allt á fótinn og síðustu 2 kílómetrarnir voru frekar strembnir.
Leiðin sem ég valdi var nákvæmlega 12 km og ég stoppaði beint fyrir framan blokkina hjá mér. Meðalhraðinn allt hlaupið var 5:56 min/km og meðalpúlsinn var 123 bpm.
Ég er ótrúelga sáttur við ganginn í þessu hjá mér og eins og ég hef áður sagt, þá virðist mér vera að takast að byggja hlaupin upp það skynsamlega að lappirnar séu að ná að venjast þessu. Eymslin í fótunum hafa minkað til muna og mér er farið að hlakka gríðarlega til næsta vetrarhlaups UFA.
Ég steig á viktina í morgun og ég stend í 65 kg sem er ca. 2 kg meira en þegar ég er að hjóla á fullu og ekki að lyfta. Þar sem ég er að leggja mikla áherslu á hlaupin þessa dagana ætla ég að fara niður í 63 kg aftur fyrir næsta hlaup- það munar svo ótrúlega miklu.
Á morgun er bekkpressa og efripartur í ræktinni og hvíld á þriðjudaginn. Ég er búinn að vinna vel inn fyrir því.
Ummæli