Vikan tæmd
Vikan á Training Peaks. |
Ég átti fína tvo daga í Reykjavík í lok vikunnar en það var mjög gott að komast norður aftur snemma í gær. Við Harpa skelltum okkur á búðarráp og svo tók ég eina hörkuæfinu á Zwift. Ég ætlaði að taka 1,5 klst af rólegu endurance en skellti mér í group-ride þar sem hraðinn var aðeins meiri en ég hafði búist við. Þetta var drullugaman en ég stytti æfinguna niður í rúma klukkustund og þá var maður kominn tæpa 45 km. Maður hélt rúmlega 40 km/klst og meðalvöttum upp á 184. Ég hefði s.s. alveg getað hangið inni lengur en þar sem ég hef ekki verið að hjóla og átti langt hlaup í dag taldi ég öruggara að hoppa af lestinni. En ég fékk ekki strengi og fann ekkert fyrir þessu.
Það er greinilega kjörið að henda sér í þessi samhjól þegar maður þarf að taka lengri endurance æfingar því tíminn er fljótur að líða og maður þarf að hafa sig allan við. Maður verður bara að passa sig að velja hóp í réttu getustigi miðað við þá æfingu sem maður á fyrir höndum. Ég valdi hóp sem átti að vera á 2,4 - 2,6 w/kg en ég er svo léttur og brautin svo flöt að ég var á 2,9 w/kg að meðaltali sem er í efri mörkum fyrir mig eins og formið er.
Í dag átti ég langt hlaup og ég var búinn að vera stressaður að lappirnar yrðu aumar og lélegar. Þær áhyggjur voru hinsvegar óþarfar og mér leið bara mjög vel þessa 11 km sem ég fór. Ég hljóp að heiman, í gegnum Kjarnaskóg, norður nýja stíginn hjá flugvellinum, í gegnum innbæinn og upp Spítalastíg heim. Ég hélt hraða upp á 5:56 min/km og púlsi upp á 131 bpm. Ég er ótrúlega sáttur við þetta hlaup og sýnist að þessi hóflega nálgun mín á hlaupin sé að skila árangri. Ég hlakka til að taka þátt í Vetrarhlaupi #2 sem fram fer 29. nóvember.
Nú þarf ég að setjast niður og gera plan fyrir vikuna. Ég ætla að taka lyftingar á morgun (bekkur og efri partur), hjól og lyftingar á þriðjudag, spretti á miðvikudag eða fimmtudag og koma svo einni hjólaæfingu í viðbót inn og að sjálfsögðu langt hlaup á sunnudaginn næsta.
Ummæli