Gróft æfingaplan fyrir árið.

Gróft uppsett æfingaplan fram í lok ágúst 2023. 

Nú er ég nokkurnveginn búinn að leggja upp æfingaárið fyrir mér, þ.e. stóru myndina. Fyrir mér er það líka stóra myndin sem skiptir mestu máli og ég nenni ekki að detta í of djúpar pælingar um einhverjar flóknar útfærslur á einstaka æfingum eða missa mig í smáatriðin. Aðalmálið er að halda stöðuleika og jafnvægi og passa sig að ofgera sér ekki. 

Svo er mikilvægt að nýta sér allt sem flokkast sem "low hanging fruit". Þar erum við t.d. að tala um mataræði, svefn, andlega heilsu, liðleika, alhliða styrk, hvíld frá snjalltækjum, skipulag, tímastjórnun og hvíld, svo eitthvað sé nefnt. Maður getur verið með flottasta og dýrasta æfingaplan í heimi en ef þessir hlutir eru ekki lagi þá gagnast það ekki neitt.

Ég var að hugsa um að skrifa ítarlega um hvað er í gangi í hverri periodu fyrir sig en held ég nenni því ekki. Aðalatriðið er að ég byggi þetta upp á reynslu síðasta vetrar þar sem ég brenndi mig á því að vera að taka of mikla ákefð of snemma. Núna verða bara þolæfingar fram í febrúar, þá tekur við threshold blokk og það verður komið fram á keppnistímabil þegar ég byrja að taka spretti og einhverja alvöru ákefð. Þetta held ég að henta mér betur og mér finnst ég fljótur að toppa þegar ég bæti í ákefðina.

Threshold hlaup dagsins.

Ég var í vinnuferð í Mývatnssveit í morgun en þegar ég kom heim ákvað ég að henda mér út að hlaupa þó ég væri eitthvað bommaralegur. Ég byrjaði á því að skokka 1,5 km en svo gaf ég í og hélt 4:30 min/km í 3,5 km. Hlaupið var tæpir 6 km og ég var 29 mínútur. Púls 143 að meðaltali en var að damla í 150-160 bpm þegar ég var á fartinu. Þegar ég kom heim tók ég æfingar og teygði vel á. Er að fara að henda mér í bað og svo fer ég út að borða með vinnunni.

Á morgun er 1,5 - 2 klst á hjólinu, lyftingar á föstudag, hjól á laugardag og langt hlaup á sunnudag.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap