Granfondo
Strava færsla dagsins. |
Þá er ég búinn með fyrsta granfondo (100 km) vetrarins á Zwift. Mig minnir að ég hafi nú bara farið svona langt einu sinni í fyrravetur enda tekur þetta drjúgan tíma og er töluvert strembið andlega. En ástæðan fyrir að ég ákvað að láta vaða á þetta núna er að ég er búinn að vera að nota samhjóls-fítusinn á Zwift (group ride). Þegar maður hjólar í hóp (peloton) á Zwift, þá fer maður töluvert hraðar þar sem maður sparar orku að vera stundum á eftir öðrum. Þar af leiðir að maður er ekki alveg jafn lengi að klára 100 km.
Í Zwift Companion er hægt að finna sér viðburði/samhjól til að taka þátt í marga daga fram í tímann. |
Ég er með tvö öpp í símanum sem tengjast Zwift. Annað er sjálft forritið til að hjóla í, en þegar maður notar tölvuna getur maður líka haft kveikt á Zwift Companion (ZC) í símanum. í ZC er hægt að skoða kort, finna hjólara, fylgjast með helstu tölum og spjalla við aðra. Þar er líka hægt að fara í viðburðardagatal og finna sér samhjól eða kepnnir. Samhjólin eru eftir styrkleika og maður þarf að hafa í huga að yfirleitt eru þau mun erfiðari en maður heldur. Í dag var ég t.d. í styrkleika D sem var alveg nóg fyrir svona langt hjólerí. En það er ótrúlega þægilegt að geta verið búinn að negla niður góðan hóp til að vera í ef maður er með skipulagða æfingu.
Ein aðalaástæðan fyrir því að mér finnst svona gaman að hjóla í svona hóp er sú að tíminn er miklu fljótari að líða. Maður þarf að vera vakandi, passa sig að dragast ekki aftur úr og stundum að reyna að halda hópnum saman. Ég hangi mikið fremst og reyni að leggja eitthvað af mörkum við að draga hópinn áfram. Mórallinn er líka oft helvíti fínn og maður er að spjalla við aðra og grínast.
Hin ástæðan fyrir því að mér finnst þetta skemmtilegt er að maður fer einfaldlega miklu hraðar og loggar inn fleiri kílómetra á styttri tíma. Þó maður fengi alveg eins mikið út úr því að vera einn og fara styttra þá er bara eitthvað sálfræðilegt við að fara hraðar og sjá kílómetrana bunkast inn. Það er hvetjandi.
Ég mun ábyggilega halda áfram að nota svona samhjól á meðan ég er bara að hjóla endurance. Maður getur valið auðveldari hópa þegar maður er að fara langt og svo prufað að skella sér í C og B styrkleika þegar maður ætlar að fara styttra og reyna aðeins að ýta á sig.
Það er orðið langt síðan ég hef hjólað svona langt í beit og ég verð að viðurkenna að ég er svolítið þreyttur. Ég var að maxa í hnébeygju í gær og taka erfiða fótaæfingu þannig ég er alveg búinn að taka vel á því síðustu 2 daga. Skv. plani á að vera langt hlaup á morgun en ég er ekki viss um að það sé sniðugt að taka það. Kannski hvíli ég bara á morgun svo ég verði góður í hlaupinu á miðvikudaginn.
Nú ætla ég hinsvegar að leggjast í sófann, horfa á Danmörk spila við Frakka á HM og éta vel af nammi.
Góðar stundir
Ummæli