Ræktin og hlaup
Alltaf líf og fjör í ræktinni. |
Lífið hjá mér heldur áfram að snúast um líkamsrækt og hlaup þessa dagana. Ég skellti mér í ræktina í gær og það var styrktaræfing fyrir efripart á boðstólnum. Við vorum að taka þunga bekk- og axlarpressu og þetta gekk alveg sæmilega. Ég þyngi rólega upp á milli æfinga og held að verkirnir/óþægindin sem fylgja lyftunum séu frekar á undanhaldi og ég finn ekkert fyrir þessu í dag. Ætli ég sé ekki kominn upp í 70-80% af þeim þyngdum sem ég var að taka síðast og er bara sáttur við það, enda rétt að byrja.
Í dag er þoltími í ræktinni í dag og svo ætla ég að fara út að hlaupa á morgun. Ég hafði upp á einhverri konu hér í bæ sem er að selja nagla undir hlaupaskó og ætla að kaupa af henni 30 stk. í kvöld til að vera vel skógaður á næstunni. Það þýðir líka að ég verð að kíkja á hlaupaskó á eftir til að eiga bæði neglda og óneglda. Ég er staðráðinn að halda hlaupunum inni í prógraminu í vetur eins og kostur er.
Ummæli