Raunveruleikinn mættur
Tók þessa fallegu mynd þegar við fórum í heimsókn í Dálkstaði í gær. Veðrið er búið að vera rosalega fallegt upp á síðkastið. |
Nú er frábær helgi að baki og saltfiskurinn byrjaður af fullum þunga, fiskibollur komnar í ofninn og Brynleifur úti að kenna systur sinni að skate-a. Á eftir ætlum við að kíkja á Billa og Nóa þar sem Harpa er í vinnunni en svo væntanlega bara eitthvað að lufsast eftir það. Ég er að reyna að skrúfa niður símatímann hjá þeim og það er frekar erfitt. Það þýðir líka að ég þarf að finna mér eitthvað annað að gera á sama tíma🙈.
Ég skellti mér í ræktina áðan og tók vel á því. Ég er eitthvað að hamast við að þyngja í bekkpressu og það gengur ágætlega. Það fylgdu því smá verkir á meðan á því stóð en góðu fréttirnar eru að þeir hverfa svo algerlega þegar ég hætti. Ég er farinn að halda að ég sleppi við að láta fjarlægja titanplötuna. Fínt að vera með auka styrkingu.
Nú er komið í ljós hvaða leið verður farin í fyrsta Vetrarhlaupi UFA og það voru gríðarleg vonbrigði fyrir mig. Brautin er 8,5 km og ég veit ekki alveg hvort ég treysti löppunum í að fara svona langt á miklum hraða. Og ekki nenni ég að mæta bara til að skokka þetta.
Ég hugsa að ég láti mig samt hafa það en annars gæti ég líka sjálfur bara farið og hlaupið 5 km á tíma. Ég melti þetta á morgun. Ég er líka að spá í að fara brautina á morgun hjólandi og reyna að átta mig á henni, þetta er frekar ruglingsleg útgáfa af Lögmannshlíðarhringnum með allskyns hlykkjum í gegnum Gilja og Glerárhverfið.
Ummæli