Narcissist
Nokkur einkenni narsisima- að vera fullur aðdáunar á sjálfum sér. |
Hefur einhver lent í að glíma við narsisista í persónulega lífinu eða vinnu? Þetta eru áhugaverðir karakterar og yfirleitt best að loka bara á þá strax ef maður getur. Maður hefur lesið að margar persónuleikaraskanir, t.d. þessi og jaðarpersónuleikaröskun séu nánast ólæknanlegar- m.a. vegna þess að það er nær útilokað að láta viðkomandi átta sig á og viðurkenna hvað er að. Þessi einstaklingar eru mjög ólíklegir til að leita sér meðferðar og þær skila oft ekki miklu. Nóg um það.
Veðurspáin fyrir morgundaginn er hörmung og ekki alveg ljóst hvort ég geti farið út að hlaupa. Kannski fæ ég bara að fara á hlaupabrettið hjá Hörpu. Ætla að reyna að hlaupa 5-6 km. Ég er byrjaður að reyna að finna mér eitthvað götuhlaup í nóvember/desember til að taka þátt í. Markmiðið er að hlaupa 5 km á undir 23 míntútur. Það ætti að vera gerlegt ef ég verð skynsamur og fer að henda inn smá tempó og sprettum.
Í gær bæði hljóp ég og fór í ræktina. Í ræktinni tók ég réttstöðu og hnébeygju. Þurfti að passa hnéin á mér vel í hnébeygjunni og tók bara 40 kg, djúpt og rólega. Fór upp í 90 kg í réttstöðunni sem er ágætt til að byrja með. Er strengjaður í dag en held að það sé bara eftir æfinguna á miðvikudaginn.
Henti mér í gufu og pottinn í morgun og stefni núna á að kíkja í búðir með Hörpu og svo borða eitthvað næs í kvöld.
Ummæli