Lögmannshlíðarhringurinn- brautarskoðun

Ég hjólaði Lögmannshlíðarhringinn

Ég skellti mér út að hjóla eftir vinnu í dag og ákvað að skoða brautina fyrir fyrsta vetrarhlaupið. Eins og ég sagði í síðasta pósti þá var ég ekki alveg viss út frá brautarlýsingunni hvernig hún liggur, en þetta skýrðist allt. Hún byrjar örlítið á fótinn en eftir ca. 1 km kemur býsna brött brekka en svo er þetta mest niður í móti alveg að Lónsbakka. Það koma aftur hækkanir úr Giljahverfinu að Orkugarði, þar sem markið er.

Ef ég á að vera hreinskilinn þá líst mér ekkert allt of vel á þetta. En ég er búinn að ákveða að láta mig hafa það og gera bara mitt besta. Það kemur svo bara í ljós hvort ég verði að drepast eftir þetta. Ástæðan fyrir að ég ætla að drífa mig er helst sú að mig langar að hitta fólkið og vera með. Vera í hópi. Ég hef alltaf saknað þess að geta ekki tekið þátt í svona almenningshlaupum, það er drullu gaman.

Þar sem þetta er nánast helmingi lengra en ég bjóst við (8,8 km) þá ætla ég að setja mér hófstillt markmið um að halda hraða upp á 4:50 min/km sem ætti að skila mér í mark á 42:30 mínútu. Ef ég verð á góðu róli þegar 3 km eru eftir, þá kannski reyni ég að gefa í og fara nálægt 41:00. Ef það gengur þá er það bara bónus.

En kannski er þetta óþarflega mikil bjartsýni, ég veit það ekki? Ég var að fletta upp síðasta hlaupi sem ég tók þátt í og það var 1. maí hlaup UFA árið 2019. Ég var ekkert búinn að vera að hlaupa þegar ég mætti í það og fór 5 km á 23:44 sem er pace upp á 4:45 min/km. Ég var ekki í jafngóðu formi þá (held ég) en man að ég var marga daga að jafna mig í fótunum. Ég hljóp í þunnbotna New Balance Minimus og það gjörsamlega fokkaði upp á mér kálfunum. Núna er ég í Brooks Ghost sem eru með miklu betri dempun og vonandi verður það skárra.

En annars var drullu gaman að hjóla þessa leið. Ég fór á ferðahjólinu og tók ágætlega á því. Ég hef ekki hjólað neitt af viti í heilan mánuð en hlaupin hafa sennilega haldið mér ágætlega við og ég var bara nokkuð sprækur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap