"Langt" hlaup
Helga Guðrún mætti og horfði á einn leik með Brynleifi í Smáranum og sendi eina mynd á pabbann sem var hálf eyðilagður að hafa ekki farið með. |
Þá er þessi helgi að verða um garð gengin og hún var bara alveg ágæt. Ég náði sæmilega vel að kúpla mig frá vinnunni og við höfðum það gott við Dagbjört á meðan Brynleifur var í keppnisferðinni. Það er ótrúlegt hvað hlutirnir breytast þegar annað barnið er í burtu. Þau eru nú alltaf eins og englar þessar elskur en manni finnst þetta samt hálfgert frí og gaman að geta gefið fulla athygli og dekrað svolítið. En við Dagbjört fórum í sund, kíktum á bókasafnið, borðuðum góðan mat og nammi. Síðan fór hún í afmæli í dag og náði eitthvað að leika við vinkonur sínar.
Í dag var langt hlaup hjá mér. Eins og ég var búinn að segja þá er ég að reyna að fara rólega af stað í hlaupunum og það sem einu sinni var bara stutt skokk er orðið langt og erfitt. Ég fór 5 km á 6 min/km. iWatch-ið mitt er farið að vera með leiðindi og púlsinn var alltaf að detta út, en ég reyndi að hafa þetta ekki of erfitt. Eftir 3 km fór ég að finna til í vinstra hné en hélt bara áfram og þetta slapp alveg. Þessi eymsli mín eru þess eðlis að það er allt í lagi að pína sig aðeins svo lengi sem maður finnur ekki til eftir hlaupin og daginn eftir. Ég er ekki að skemma neitt, þetta er bara vont á meðan á þessu stendur.
Hlaupavikan á Training Peaks. |
Annars er ótrúlegt hvað það er mikill munur fyrir lappirnar á manni að hjóla og skokka. Eftir 30 mínútna hlaup í dag leið mér eins og eftir 2 klst erfiða hjólaæfingu og er með smá þreytu í lærunum eftir þetta. Það er líka áhugavert að sjá hvað TSS (Training Stress Score) fer hátt við þessi hlaup. Ég þarf reyndar að lesa mig eitthvað betur til um það því ég trúi varla að þetta geti verið rétt. TSS fyrir 12,7 km af hlaupum þessa vikuna var sambærilegt og vika upp á 150 km á hjólinu þar sem ég var með 2 erfiðar æfingar. Veit ekki hvort þetta tengist því að ég er ekki búinn að setja upp "training zones" fyrir hlaupin. En það skiptir s.s. ekki öllu máli, markmiðið mitt núna er bara að halda Fitness- skorinu í kringum 50 þangað til ég dett inn í Base season á hjólinu. Svo væri reyndar gaman að halda inni smá hlaupum áfram í vetur og kíkja í Akureyrarhlaupin og einhver keppnishlaup. Þar er alltaf fullt af skemmtilegu fólki og mikil stemmning.
Ummæli