Hitt og þetta.

Á leið heim úr vinnu- sólin farin að lækka á lofti.

Lífið gengur sinn vanagang og er alveg ágætt hjá mér þessa dagana. Stressið og vanlíðanin sem var í vinnunni um daginn hefur verið á niðurleið og mér finnst ég ráða betur við þetta. Það er alveg brjálað að gera en samt bara skemmtilegt og svo mikið betra þegar manni finnst maður hafa yfirsýn. Svo eru vinnufélagarnir svo skemmtilegir að það er alltaf gaman að mæta á morgnana.

Ég fékk uppgjör úr Dyngjunni um daginn og var það langt yfir því sem ég hafði búist við. Ég náði ekki að fylla á myndalagerinn fyrir sumarið en samt hafa einhverjar restar mjatlast út. Að sjálfsögðu er ég staðráðinn í að fara að draga fram penslana og gera smá lager fyrir næsta ár. Þetta hef ég oft sagt áður en vonum að nú verði meira um efndir.

Nestor vinur minn í Brasilíu er farinn að rukka mig um innganginn að bókinni hans sem hann bað mig að skrifa. Mér finnst þetta mikill heiður og ætla að standa við loforðið en mér hefur reynst erfitt að koma mér af stað. Ég held samt að ég sé kominn með ágætis hugmynd um hvað ég ætla að segja. Það er eitthvað!

Ég var að fara yfir dagatalið í Training Peaks áðan og áttaði mig á því að ég er búinn að taka 9 æfingar á 10 dögum- og hef líka verið að þvæla á hjólinu um bæinn. Þetta er orðið frekar mikið álag en ég er samt duglegur að rótera rækt á móti hlaupum. 

Áðan hljóp ég rúma 4 km rólega og hljóp kirkjutröppurnar 6x. Ég var alveg herfilega stirður þegar ég byrjaði en svo skánaði það aðeins. Ég var hinsvegar alveg rosalega sprækur í tröppunum en heimleiðin var frekar þung. 

Nú er búið að auglýsa 1. Vetrarhlaup UFA á miðvikudaginn eftir viku og það verður því miður 6 km en ekki 5 eins og ég var að vona. Markmið mitt um sub 22 mínútur er því úr sögunni en ég reyni þá bara að ná 26:30 í staðinn. Nú þarf ég bara að leggja næstu daga skynsamlega upp og passa mig að hlaupa mig ekki í meiðsli.

Mataræðið hefur verið þokkalegt á mér síðustu daga. Hef samt misst mig aðeins of mikið í kex með smjöri í vinnunni. Ég ætla að vikta mig í fyrramálið en það hef ég ekki gert býsna lengi. Stundum finnst mér gott að skrifa niður hvað ég borða yfir daginn. Hér er dagurinn í dag:

07:30    Spínat-smoothie og gróft brauð með skinku og osti
10:00    Spínat-smoothie og banani
12:00    Fiskur í raspi, kartöflur og kokteilsósa + kaffi og einn Dumle moli
14:30    3 hrökkbrauð með smjöri og smá ostur
16:30    Orkugel í kirkjutröppunum
17:00    Hleðsla
19:00    Heilhveitisamloka í grilli, 2 spæld egg, kotasæla, epli og bláber

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap