Heilsuúr
Apple Watch vs. Garmin - mynd Pinterest |
Nú er Apple úrið mitt að verða 5 ára eftir tæpan mánuð og alveg að pissa út. Helsta vesenið er að hjartsláttamælingin er alltaf að detta út og það gengur alls ekki þar sem það hefur svo mikil áhrif á TSS skorið. Einnig fer maður að draga í efa hversu mikið er að marka önnur gögn sem byggja á hjartsláttarmælingum. Einnig gengur illa að "zynca" æfingum á milli ólíkra forrita. Þetta pirrar mig mjög mikið.
En Apple úrið góða (iWatch 3) fékk ég í 40 ára afmælisgjöf frá pabba og Hafrúnu (sem minnir mig á hvað ég er að verða gamall). Ég hef verið mjög ánægður með það og mæli alveg klárlega með. En það sem helst hefur farið í taugarnar á mér er hvað batteriíð endist skelfilega stutt. Garmin endist í fleiri daga og er miklu meiri vinnujálkur og maður þarf ekki alltaf að stóla á snertiskjá, sem getur verið bömmer í bleytu og kulda. Maður getur líka sofið með það án þess að vera alltaf að hlaða það.
Hér er ágætis grein sem ber saman kadiljákana í þessum snjallúrum en ég á eftir að lesa þetta betur. Lokaniðurstaðan er að Apple er betra snjallúr og aðeins betra "heilsuúr" en garmin er betra íþróttaúr. Ég er búinn að vera að skoða verðin á þessu dóti og það lítur út fyrir að ég muni alltaf kaupa eitthvað eldra módel. Nýtt Garmin Enduro eða Apple Ultra kosta 180 þús. Það er aðeins of mikið fyrir úr.
Garmin Enduro- mynd Pinterest |
Despite the appeal of a sportier Apple Watch, Garmin easily wins in the areas where sports watches shine brighter than other timepieces. The five easy-to-access buttons make it usable in extreme conditions where you can’t easily swipe or tap the screen, and its navigation and mapping chops are still unrivaled, even by the likes of Google and especially Apple. Its month-long battery life is no small matter, especially when you take frequent trips outdoors. You will, however, be limited by what your smartwatch can do outside of those occasions, but that might better match your extreme lifestyle more than any other smartwatch.
Ummæli