Dagur eftir hlaup

Svifryksbærinn Akureyri

Ég er búinn að vera ótrúlega peppaður í allan dag út af þessu hlaupi í gær. Það er bæði vegna þess að ég er svo ánægður með hvernig mér gekk og svo fannst mér bara svo djöfull gaman að hlaupa og vera í kringum allt þetta fólk.

Ég væri að ljúga ef ég segði að ég fyndi ekkert fyrir hlaupinu en ég gæti alveg klárlega verið mun verri. Ég er með væga strengi og líður eins og lappirnar séu pínu brothættar. En þetta er allt innan eðlilegra marka. Ég ákvað að sleppa bara æfingu í dag, enda búinn að æfa 4 daga í röð og það er allt brjálað að gera með börnunum í tengslum við tómstundir og við að elda og halda heimilinu á floti. 

Smellti einni mynd á leiðinni heim úr vinnunni. Svifryksmengunin hér í bæ er búinn að vera viðurstyggð upp á síðkastið og það er eiginlega ekki hægt að hjóla meðfram helstu umferðargötunum. Hversu sjúkt er það?

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap