Brúðkaup og sunnudagshlaup

Við Harpa í brúðkaupi í gær.

Við Harpa skelltum okkur í brúðkaup hjá Dagbjörtu frænku Hörpu og Gesti, óðalsbændum á Dálksstöðum í gær. Veðrið var frábært, athöfnin falleg og mjög fyndin (Oddur Bjarni gaf þau saman), maturinn var geggjaður og það var bara rosalega gaman hjá okkur. Ég man hreinlega ekki hvenær ég fór í brúðkaup síðast en það er orðið ansi langt síðan.

Í hádeginu skellti ég mér svo út að hlaupa. Ég var búinn að hafa áhyggjur af því að lappirnar á mér væru að kikna undan þessu nýja áreiti en það var alveg óþarfi. Mér leið vel frá fyrstu mínútu, það vel reyndar að ég var alveg viss um að það kæmi eitthvað hroðalegt bakslag eftir nokkra kílómetra. Þetta var of gott til að vera satt.

Hádegishlaup dagsins.

Ég hljóp að heiman, niður skautasvellsbrekkuna, gegnum innbæinn og miðbæinn, upp í háskóla, Borgarbraut og meðfram Gleránni heim aftur. Ég mallaði fyrst á +6/min/km en þegar ég átti 3 km eftir gaf ég aðeins í og leið bara ágætlega. Það kom smá seiðingur í vinstra hnéið en aldrei svo að ég hefði áhyggjur. Ég fór 10,46 km og var með meðalhraða upp á 5:57/min/km og meðalpúls var 131 (Z2). Þetta var s.s. prýðilegt easy run.

Ég er ótrúlega ánægður með og þetta kemur mér mikið á óvart. Ég var frekar verkjaður í fótunum seinnipartinn í vikunni en virðist hafa náð því úr mér þrátt fyrir erfiða fótaæfingu á föstudaginn. Núna er ég á báðum áttum hvort ég hlaupi meira fyrir keppnina á miðvikudaginn eða hvort ég taki frekar klukkutíma á hjólinu á morgun eða hinn. Ég er hinsvegar ákveðinn í að taka bekk og efripart í ræktinni á morgun.

Svo er bara að sjá til hvað ég get gert í hlaupinu á miðvikudaginn og hvað ég geri í framhaldinu. Ég verð að viðurkenna að þetta er aðeins búið að kveikja í mér og ég velti fyrir mér hvort ég geti kannski á einhverjum tímapunkti endurvakið gamla markmiðið mitt um að hlaupa 10 km á undir 40 mínútum? En ég ætla ekki framúr mér, stefni fyrst að því að komast 5 km á ca. 20 mín.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap