Tafir
Jæja þá er ég kominn aftur heim eftir vinnuferð til Reykjavíkur. Eins og mig grunaði þá frestaðist flugið á mánudaginn og ég kom með Boeing 757 í bæinn 5 klst of seint á fundinn. Í kvöld kom ég svo hálftíma of seint með annari þotu. Veit ekki alveg hvað er að frétta.
En fundurinn var virkilega góður og ég vildi að ég hefði getað einbeitt mér betur. Það var stanslaust áreiti og allt á fullu á öllum vígstöðvum. Ég skil ekki hvernig ég fúnkera ennþá. Kannski vegna þess að ég reyni að passa mig að sofa alltaf vel. Talandi um það, klukkan er 21 og ég er kominn upp í rúm. Alveg búinn á því.
Tók ágætis æfingu á Hotel Natura í gær og svo fórum við út að borða á Matarkjallaranum. Sá staður fær alveg toppeinkunn og allir réttirnir voru alveg geggjaðir. Ég reyndar þurfti ekki að taka upp veskið og hef því ekki hugmynd um hvað þetta kostaði.
Á morgun er í nógu að snúast eins og venjulega en þar sem ég er ekki að hjóla hef ég meiri tíma í að sinna börnunum og heimilinu. Þó ég ætli út að hlaupa finnst mér vera frídagur.
Ég er búinn að vera að horfa á Dahmer þættina á Netflix. Ég þekki sögu þessa sjúka manns ansi vel og man eftir því þegar hann náðist 1991, það var fjallað töluvert um það í fréttunum. Þættirnir eru svo vel gerðir að það er hreinlega sársaukafullt að horfa á þá og maður er við það að slökkva. En mér finnst þeir gera nokkuð vel í því að reyna að varpa ljósi á hversvegna í ósköpunum einhver getur fengið af sér að gera svona óhugnað. Evan Peters fer óhugnalega vel með hlutverkið og er ótrúlega líkur honum.
Ummæli