Pælingar um fjallaferð 2023
Fyrsta plott af pælingum og mæling á vegalengd. |
Eftir að ég rakst á einhverja fallega mynd úr fjallaferðinni minni 2020 þá kviknaði hjá mér löngun í að fara að plott upp næstu ferð. Það var notalegt að finna löngunina um að fara á fjöll koma af fullum þunga til baka. Ég er búinn að vera á hvolfi í götuhjólapælingum og þetta hefur einhvern veginn ekki komist að. En ég er ekki hættur að vera hjólaferðalangur. Ég fer kannski minna en ég sá fyrir mér á tímabili en ég er ekkert hættur þessu og stór hluti af gleðinni við þetta er einmitt að skipuleggja og pæla.
Ég hef lengi verið að velta fyrir mér Arnavatnsheiðinni og langar að fara þar yfir. Ég myndi taka strætó í Miðfjörð og leggja upp þaðan. Síðan myndi ég krækja fyrir Langjökul, fara inn á Kjalveg og koma mér norður aftur (Húnaver). Þetta eru ca. 360 km og það ætti ekki að taka svo marga daga. Ég hefði verið spenntur fyrir að finna aðra leið en Kjalveg vegna umferðarinnar um þann veg, en það má kannski bara reyna að hjóla snemma á morgnana og svo á kvöldin.
Að hjóla yfir Flæður við Dyngjusand í sól og blíðu árið 2020. Einhver ótrúlegasta lífsreynsla sem ég hef upplifað. |
Ég ætla líka að skoða hvort maður komi við í Kerlingafjöllum en þangað hef ég ekki komið síðan ég var 5 ára á skíðum. Afleggjarinn þangað er 10 km þannig það er ekkert svo mikil viðbót. Það væri næs að komast þangað í skála og hlaða batteríin.
Í staðinn fyrir að klára Kjalveg er líka hægt að stefna í austur frá Blöndulóni og reyna að koma sér niður í Vesturdal og svo Skagafjörð. Það er væntanlega lengra og einhverjar ár sem ég þarf að skoða hvernig eru.
Eftir síðasta fjallaævintýri er ég staðráðinn í að taka þessar ár aðeins alvarlegar, enda lenti ég í töluverðu basli og það kom mér aðeins niður á jörðina.
Mér sýnist að þetta ferðalag gæti verið 7-10 dagar og ég var að reyna að fara yfir það í hausnum hvort það væri margt sem ég þyrfti að kaupa fyrir þetta. Það sem ég man eftir í fljótu bragði er betri einangrunardýna og tjald. Ég held ég eigi annað til. Fjallraven skeljakkinn sem ég keypti í Svíþjóð fer reyndar að komast á tíma en ætti að þola eitt sumar í viðbót. Að lokum þyrfti ég að að skipuleggja mjög vel hvað ég tek með að borða ef ég ætla ekki að taka upp vistir á leiðinni. 40.000 - 60.000 hitaeiningar taka sitt pláss.
Ummæli