Sól, sumar og ofboðsleg matarlyst
Túr dagsins |
Það var skrautlegur dagur hjá mér í vinnunni og hann byrjaði með því að það var hringt í mig og mér tilkynnt að ég þyrfti að fara til Búdapest í næstu viku á fund. Sem betur fer breyttist það, enda ég búinn að vera að skipuleggja annan alþjóðlegan fund sem verður í Reykjavík á sama tíma. Það er alveg nóg púsluspil þar sem ég er með börnin í næstu viku. Og svo bara logaði skipið stafnanna á milli og ég hljóp fram og aftur reyndi að slökkva elda. Hressandi.
Ég skellti mér út eftir vinnu og tók góðan túr fram í fjörð. Þegar ég var kominn á Grund nennti ég ekki að streða meira á móti vindinum, snéri við og fór til baka austanmegin (yfir hjá Hrafnagili). Fór svo upp Veigastaðabrekkun, í gegnum hverfið þar uppi og niður hjá göngunum. Ég tók kannski aðeins meira á því en ég hafði ætlað mér en var bara sprækur. FTP-gildið mitt stendur ennþá í 245 en ég hef ekki nennt að taka test og er þannig lagað alveg sama. Ég hef grun um að ég sé kominn eitthvað hærra og því sennilega nálægt markmiðinu mínu fyrir árið um 4 w/kg en kemst s.s. aldrei að því.
Síðustu 5 daga er ég búinn að hjóla að meðaltali 43 km/dag utan við samgönguhjólreiðar og sennilega ekki vitlaust að hvíla á morgun. En sama hvort það eru æfingarnar eða eitthvað annað, þá er ég með alveg svakalega matarlyst og man varla eftir öðru eins. Ég er á beit allan daginn og hef ekki staðið mig nógu vel í að éta grænmeti og ávexti. Seinnilega er þetta bara líkaminn að kalla á eitthvað til að standa undir æfingunum og ég ætla leyfa mér að éta vel en leggja meiri áherslu á hollustuna og hemja mig aðeins í sykrinum. Og svo er kominn tími á fiskmáltíð, er ekki búinn að borða fisk (nema plokkfisk) í meira en viku.
Ummæli