Óveður
Brotnar greinar og allt á hvolfi. |
Það er búið að vera frekar óskemmtilegt veðrið hérna á Akureyri í nótt og í dag eins og spáð var. Vaknaði við einhver læti í nótt og lokaði glugganum en varð svo ekki var við mikið eftir það. En þegar ég koma út í morgun voru greinar og laufblöð út um allt og mér sýnist á ruv.is að það verði forvitnilegt að horfa á fréttirnar í kvöld.
Ég á að fljúga suður í fyrramálið og er orðinn frekar hræddur um að þau plön fari öll í vaskinn. Ég á að byrja á alþjóðlegum fundi sem við erum búin að vera að skipuleggja klukkan 9 í fyrramálið og í ljósi sögunnar er ólíklegt að það gangi eftir.
Ég var búinn að lofa mér að hvíla hjólið þegar veðrið leyfði ekki lengur útihjólreiðar og ég ætla að standa við það. Hjólið á trainer-num fær því að standa ónotað eitthvað áfram. Ég var að hugsa um að skella mér út áðan og hlaupa en ákvað svo bara að gera slatta af æfingum inni.
Ég er búinn að vera duglegur (duglegri) við að teygja á mjöðmunum á mér og ég finn strax mun á mér. Manni finnst maður eiginlega ekki vera að gera neitt en þetta mun pottþétt skila árangri. Ég hendi mér í gólfið og teygi, geri kósakka hnébeygur og rúlla mig til skiptis við planka, upphífingar og armbeygjur. Áðan prófaði ég líka að gera hnébeygjur á annari og er farinn að geta farið helvíti djúpt. Þegar ég rúlla í gegnum þetta er reyni ég að vera í góðu flæði (flow state).
Flow state training is the attempt to bring many things into focus without having to spend conscious effort focusing on them. It is the purview of experts and virtuosos, those who perform flawlessly without seeming to try. Achieving something like a flow state is also a great goal for those of us struggling in the gym.
Margir sem eru að ströggla við að halda sér við efnið í ræktinni gætu lært mikið af því að kynna sér flow state. Meira um það seinna.... eða ekki
Ummæli