Langur laugardagur

Á leið upp á Öxnadalsheiði með Gulla.

Nú sit ég hérna á sófanum og er að reyna að hafa mig af stað í að gera eitthvað og reyna að koma mér austur í sveit. Ég verð hinsvegar að viðurkenna að ég er frekar lúinn. Við Gulli skelltum okkur út að hjóla í morgun og enduðum með að fara alveg upp á Öxnadalsheiði, samtals 105 km. 

Það var þoka þegar við lögðum upp en þegar við komum yfir Moldhaugnahálsinn þá var bara blíða og yndislegt veður. Við tókum því rólega fyrri helminginn en á leiðinni til baka fórum við að spýta í lófana og tókum vel á því. Gulli er með góða dieselvél og ég mátti hafa mig allan við að halda í hann. Við héldum tæplega 34 km meðalhraða á leiðinni til baka og þetta var því hálfgerð threshold æfing.

Við Gulli kynntumst fyrir rúmlega 25 árum í gegnum Skotfélag Akureyrar og nú erum við að endurnýja kynnin í gegnum hjólasportið. Gulli er alger öðlingur og við spjölluðum um heima og geyma, staðráðnir í því að láta verða af því að hjóla oftar saman. Þessi ferð gaf mér mikið og ég fer hamingjusamur inn í daginn.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap