Klikkaðar hugmyndir og smá útihjól
Laugardagstúr rétt hjá Gásum. |
En ástæðan fyrir því að ég fór að spá í þessu aftur er að ég er að ég væri alveg til í að prufa að taka að mér þjálfun á einhverjum tímapunkti. Síðan 2010 er ég búinn að vera viðloðandi hlaup, hjól og líkamsrækt og hef haft brennandi áhuga á næringu. Ég held að ég hafi ýmsu að miðla og hef mjög ákveðnar skoðanir á því hvernig þjálfari á að vinna og nálgast viðfangsefnið.
Þó ég telji mig hafa alveg nóg til brunns að bera að koma einhverjum sófakartöflum í gott form (ég myndi aldrei vilja taka að mér lengra komna strax), þá kynni ég eiginlega ekki við að gera það nema að ég hefði náð mér í einhver réttindi eða menntun. Ef ég hinsvegar dusta rykið af þessu meistaranámi og vel mér áfanga og lokaverkefni með það fyrir augum að ég ætli að þjálfa, þá horfir þetta öðruvísi við. Þá gæti ég tæknilega séð tekið að mér 2-3 einstaklinga strax um áramót með vinnunni.
En ég var líka að tala um klikkaðar hugmyndir. Ég er í vinnu sem er sjúklega krefjandi og er með börnin aðrahverja viku. Þegar ég er með börnin þarf ég að koma Dagbjörtu í fimleika og píano þrisvar í viku og ég á ekki bíl. Málningarvinna og sköpun hafa því miður setið á hakanum en mig langar heldur ekki til að henda því alveg frá mér. Til að kóróna þetta þá æfi ég líka yfirleitt 6-12 klst í viku og ég var við það að brenna yfir á álagi í vor þegar ég braut mig. Þetta kannski meikar ekki mikinn sens.
En byrjunin er að heyra í námsráðgjafanum, skoða hvort ég geti fengið eitthvað metið og hvort hægt sé að stilla upp einhverju plani sem er ekki allt of þungt. Ef ég geri þetta skynsamlega þá gæti þetta alveg opnað nýjar dyr fyrir mér þegar frá líða stundir.
Ummæli