Æfingadagbók og fitt-pælingar
Mynd úr hjólatúr dagsins sem ég "dramaði" aðeins upp. |
Núna er maður kominn yfir í nokkurskonar viðhaldsfasa í æfingum. Núna hjólar maður bara sér til skemmtunar og reyni að halda þokkalegu formi. Núna er það frekar magn umfram ákefð sem gildir, þ.e. á meðan veðrið leyfir útihjólreiðar þá reynir maður bara að njóta. Í gær var t.d. 60 km samhjól sem var tekið á rólegu tempói, sem var skemmtileg tilbreyting. Síðustu 3 dagana í síðustu viku náði ég 140 km, allt frekar rólegt.
Varðandi framhaldið, þá verða október og nóvember svo mest lyftingar, teygjur og hlaup og svo fer maður aðeins að henda sér á hjólið í desember. Í janúar tekur við grunnur (base), eftir þrjár þannig blokkir fer maður að fasa út lyftingarnar og fer yfir í uppbyggingarfasa (build phase) og svo kemur ein blokk af "toppun" (peak phase)- það er kirsuberið ofaná kökuna fyrir þá keppni sem maður hefur valið sem A-race. Þá fer magnið aðeins niður og ákefðin upp.
Ég er ekki ennþá búinn að gera upp við mig hvar ég fer að lyfta þegar sú törn hefst. Einn möguleiki er að nota ræktina hérna í Háskólanum en ég hef ókeypis aðgang að henni. Þannig gæti ég farið tvisvar í viku í hádeginu og einbeitt mér að löppunum. Það góða við það er náttúrulega tíma- og peningasparnaður, en mér finnst pínu bömmer að missa af hádegismat með vinnufélögunum.
Fitness úr Training Peaks. Á myndinni fyrir 365 daga sést bæði covid og viðbeinsbrot. |
Annars var ég að taka saman hvað ég er búinn að æfa mikið síðan ég kom frá útlöndum og gat byrjað að hjóla úti aftur. Síðustu 9 vikurnar er ég búinn að hjóla að meðaltali 200 km á viku (utan við samgönguhjólreiðar) og er bara nokkuð sáttur við það. Síðustu fjórar vikur eru þetta 5 æfingar á viku, 200 km og 7 klst á hjólinu. Ég setti mér sem markmið að hjóla allavega 8000 km á árinu og nú er ég varlega áætlað kominn í 7500 með samgönguhjólreiðum, þannig þetta fór nú ekki allt í vaskinn með slysinu.
Núna er ég kominn 140 km á hjólinu eftir að ég fór í bike-fittið og það hefur verið svolítið áhugavert. Ég er ekki ennþá farinn að átta mig á því hvernig hnakkurinn virkar fyrir mig og þarf oft að laga mig til til að sitja rétt. Ég dofna ennþá ef ég gleymi mér og sit lengi. Innleggin í skóna eru alveg geggjuð og ég finn mikinn mun eftir að þau komu. Að lokum, þá finn ég mikinn mun eftir að hann hækkaði hnakkinn. Ég virkja mikið betur rassvöðvana og það ætti að skila meira afli þegar ég hef vanist þessu. Svo verða væntanlega frekari breytingar þegar búið er að finna fyrir mig styttri stamma.
Gott í bili
Ummæli