Brekkur

Brekkan í Kjarnaskógi, again and again.

Það er hávaðarok hérna og æfing dagsins sem átti að vera löng breyttist í klifuræfingu. Ég var búinn að ætla að hjóla rólega ca. 80 km en þegar ég var farinn að þurfa að fara upp í 250-300 w til að halda 20 km/klst við Hrafnagil, þá ákvað ég að snúa við. Maður átti fullt í fangi með að halda sér á hjólinu. 

Ég hjólaði því til baka og ákvað að taka brekkuna í Kjarnaskógi í skjóli af trjánum. Ég fékk þá flugu í höfuðið að taka hana 10x og að sjálfsögðu gat ég ekki hætt fyrr en ég var búinn að því. Tók svona hæfilega mikið á því og var ekkert að sprengja mig. 

Nú sýnist mér á veðurspá að maður fari bara að þrífa hjólið og koma því upp á vegg. Brjálað hvassviðri á morgun og svo kólnar og fer að rigna/slydda. Nú fer maður því að dusta rykið af hlaupaskónum og koma sér í ræktina. Ég geri upp hjólasumarið hér í ítarlegum pistli fljótlega.

En vikan hjá mér var ágæt; 162 km á hjólinu, 1500 metra hækkun og ca. 6,5 klst. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap