Banani

Bananaát on the road.

Þessi vika er að setja öll met í brjálæði í vinnu. Var mættur rétt rúmlega 7 í morgun og á eftir að sitja hérna til klukkan 23:00 í kvöld að garfa í tæknimálum í tengslum við beina útsendingu á veiðikortafyrirlestri. Morgundagurinn er svipaður en vonandi næ ég að stinga hausnum upp úr á fimmtudaginn til að draga andann.

Eftir vinnu á morgun ætla ég að hjóla upp á skíðasvæði og svo þarf ég að taka mig til fyrir ferðina til Reykjavíkur í bike fitt-ið. Ég tek bæði inni og útihjólið með mér og ætti því að vera góður fyrir veturinn og næsta sumar. Ég er búinn að hjóla yfir 1000 km á nýja hjólinu og er farinn að finna aðeins fyrir eymslum eftir hnakkinn.

Það var geggjað veður hérna í gær og ég hjólaði út að malbiksenda hjá Gásum og Hlíðarbæ. Fór svo til baka og framhjá Möðruvöllum og svo aftur í bæinn. Ég var að dunda mér við þetta á meðan ég var að bíða eftir að Dagbjört kláraði í fimleikum. Þetta gekk ágætlega en ég fann aðeins fyrir ferðinni með Gulla upp á Öxnadalsheiði á laugardaginn. En ég er samt kominn í það gott form að ég hélt fínum hraða þó mér fyndist ég ekkert reyna of mikið á mig.

Upp á síðkastið hef ég reynt að sleppa því að taka með mér sykurdrullu þegar ég er að hjóla. Nota helst bara gel og svoleiðis sull þegar ég er að keppa. Gel er í rauninni ekkert öðruvísi en hlaupbangsar eða cake frosting, kostar bara meira. 

How hard you are going affects two things: when we ride hard the stored carbohydrate in our bodies (in the form of muscle glycogen) is used at a faster rate, so we require a higher intake of carbohydrate to maintain blood glucose (60-90g/per hour)

Banani inniheldur að meðaltali 23 gr af kolvetnum og það er því nokkuð ljóst að maður þarf að finna sér eitthvað annað ef maður ætlar að taka langar erfiðar æfingar. Ef ég væri t.d. að fara í erfiða keppni þyrfti ég að troða á mig 9-12 banönum til að uppfylla kolvetnaþörfina. Það er reyndar svolítið fyndin tilhugsun. En það er fínt að grípa einn til tvo með í styttri túra. Síðan kaupi ég líka alltaf einhver hafrastykki sem reyndar innihalda óþarflega mikinn viðbættan sykur. Ég stefni að því að finna mér einhverjar uppskriftir svo ég geti bara útbúið þetta sjálfur heima og sett í frost.

Annað sem er mikilvægt að hugsa um er að endurheimta eitthvað af söltunum sem maður tapar þegar maður svitnar. Mikið úrval er af svokölluðum Electrolyte drykkjum, með og án kolvetna. Kolvetnadrykkirnir eru í rauninni líka bara sykurdrulla með söltum og þá reyni ég líka að nota sparlega. Hægt er að fá töflur sem bragðast ágætlega í vatni en innihalda ekki sykur. Ég reyni að nota þær frekar. Ég þarf nefnilega að passa mig á því að drekka vel og endurheimta sölt því annars verð ég allur þrútinn og útblásinn í framan.

 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap