Skólasetningar, fótbolti og BBQ
Brynleifur að segja vinunum sögur. |
Í gær var skólasetning hjá börnunum og því ekki umflúið að veturinn fer að hellast yfir okkur. En börnin voru bara kát að hitta vini sína og það var gaman að skoða skólann eftir miklar breytingar. Bjartar og fallegar stofur og mér leist vel á kennarana. Maður trúir því varla að BRB sé að byrja í 6. bekk!
Eftir það fór ég í vinnuna- sem er orðið eins og að fá stóra beljusprautu of cortisol í rassgatið. Það er mesta furða hvað ég næ að halda jafnvægi þrátt fyrir álagið sem þar er. Ætli burnout-ið um árið, skilnaðurinn og fleiri erfiðleikar hafi ekki bara hlaðið svo vel inn á reynslubankann að maður sé bara betur undir það búinn að takast á við svona bull? Nóg um það.
Eftir vinnu fór ég út að hjóla. Ég hjólaði út á Svalbarðsströnd og svo Eyjafjarðarhringinn til baka í gegnum Hrafnagil og Kjarnaskóg, samtals 51 km. Ég ætlaði helst að halda mér alveg rólegum en það tókst ekki alveg. Ég hugsa að ég hjóli ekki í dag, allavega ekki nema það verði einhverjar stórkostlegar breytingar á veðriðinu. Spáin fyrir helgina er ágæt og ég er að stefna að því að taka granfondo (100+km).
Eftir það fór ég niður í Duggufjöru þar sem mér var boðið í ekta BBQ veislu með svínarifjum, vængjum og svínakjöti. Við horfðum á Man Utd vs. Liverpool. Mínir menn töpuðu en ég er löngu hættur að taka það inná mig. Samveran var góð og gott að hitta Þórð, Siggu og Kára.
Ummæli