Hreyfing- fíkn eða geðlyf?

Álagið í vinnunni hefur verið út úr öllu korti síðustu daga og vikur og dagurinn í dag var í raunninni einn sá skrautlegasti til þessa. Ég var út úr taugaður frá því ég mætti og hvíldarpúlsinn hjá mér 20 yfir því sem ég sé á venjulegum degi. Ég er hættur að taka símtöl og er kominn í harða forgangsröðun í verkefnum. Verkefni sem áður voru ofarlega í forgangi hafa verið stimpluð sem gæluverkefni og munaður. Þó þessu hafi fylgt vanlíðan á köflum þá hef ég staðið undir þessu öllu og hef komið sjálfum mér á óvart, hafandi farið í gegnum eitt burnout.

En til að segja eitthvað jákvætt þá náði ég að lenda einu stóru máli rétt áður en ég fór heim og var það gríðarlegur léttir. Ég ætla að leyfa mér að leggjast fljótlega í bælið og góna á restina af Dope sick með góðri samvisku. Og ég var að úða í mig pitu með kjúklingi og fullt af sósu.

Í gegnum allt þetta stress upp á síðkastið þá hefur hjólið verið mín líflína. Á hjólinu gleymi ég samstundis dagsins amstri og næ alveg að kúpla út. Sama hvort ég hjóla inni eða úti, þó að sjálfsögðu sé alltaf best að komast út. En ég er líka meðvitaður um að það er þunn lína á milli þess að gera þetta af skynsemi eða láta þetta snúast upp í fíkn.

Í dag voru öll merki á lofti um að það væri skynsamlegt að hvíla. Púlsinn er óeðlilega hár og ég frekar dasaður. En þar sem ég hjólaði ekkert í gær- þá skaut upp kollinum hugsunin um að ég færi að missa form við að taka 2 daga í röð í pásu. Þetta er náttúrulega bara bull og ég náði að ýta þessum hugsunum frá mér. Þetta var fíknin að tala.

Í gegnum þetta stresstímabil hef ég náð að sofa vel, næra mig vel og æfa mjög vel. Ég er alltaf að bíða eftir að líkaminn segi "hingað og ekki lengra, þetta er orðið of mikið".... en ég bíð en. Það er til einfaldur pýramídi sem samanstendur af; hvíld, æfingar og mataræði. Ég hef passað upp á þetta allt og kannski heldur þetta mér líka gangandi í vinnunni?

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap