Geggjaður laugardagur

Á leiðinni upp Víkurskarð

Við Harpa náðum geggjuðum hjólatúr í dag og loksins var veðrið fínt. Loftið var reyndar ekkert mjög hlýtt en maður biður ekki um meira en sól og logn. Við hjóluðum í Illugastaði og komum við í einn kaffibolla í dýragarðinum Daladýrð í Fnjóskadal.

Þegar við komum aftur í bæinn þurfti ég að taka 2 km í viðbót til að ná upp í 100 en Harpa var að drífa sig á fótboltaleik til að fylgjast með Bjarka syni sínum.

Mér líður svo ótrúlega vel á hjólinu þessa dagana og held að ég hafi hreinlega aldrei verið í betra formi. Ég var að hugsa um að bæta meira við þetta og fara upp í skíðahótel en þurfti að komast í vinnuna og svo er samhjól á morgun. Ég nennti ekki að vera að ganga of nærri mér og betra að eiga eitthvað eftir á tanknum fyrir morgundaginn. Spáin er góð og lífið er yndislegt.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap