Dagur #64 - "Post vacation blues"

 

Ég verð að viðurkenna að það er búið að vera mjög erfitt að koma sér í gang eftir sumarfrí. Kannski er það að einhverju leiti út af þungri verkefnastöðu í vinnunni, en kannski tengist það líka því að ég tók bara 2 vikur frá vinnu. Hvað sem því líður þá hef ég verið betur upplagður, svo ekki sé meira sagt. Ég rakst á þessa grein á visi.is og það er manni huggun að vita að maður er ekki einn um þetta og sennilega er þetta eitthvað sem líður fljótt hjá. 

Í vinnu eru dæmigerð einkenni hjá starfsfólki sem upplifir þunglyndi eftir sumarfrí skortur á einbeitingu, eirðarleysi, að finnast erfitt að sitja kyrr, óskilgreind ónota- eða óþægindatilfinning eða að fólk verður pirrað í skapi. 

Ég held ég geti nú ekki sagt að ég sé pirraður í skapi en allt hit er "spot on". Og reyndar því miður aðeins rúmlega það. Og ég held reyndar að veðrið sé lítið að hjálpa til í þessu dæmi, ógeðið sem það hefur verið síðustu daga. En það styttist í helgina og við Harpa að fara suður. Það á ábyggilega eftir að létta lundina og gott að hafa eitthvað til að hlakka til. Annars þekki ég engin ráð til að vinda ofan af þessu? Bara að bíða og sjá, líf mitt er allavega í föstum skorðum og enga rökrétta skýringu að finna.

Æfing dagsins úr Garmin appinu.

Ég var jafnvel búinn að reikna með að ég þyrfti að taka æfingu gærdagsins inni vegna veðurs. En veðrið var nú ekki það slæmt svo ég skellti mér bara út í norðanfræsinginn. Ég ákvað að taka frekar erfiða æfingu og gera eitthvað sem gæti nýst vel sem undirbúningur undir Orminn. 

Ég hjólaði rólega út að Hrafnagili en gaf svo vel í þegar ég kom í Laugalandsbrekkuna. Markmiðið var keyra upp mjólkursýruna í brekkunni, en í stað þess að slaka á þegar ég kæmi upp, ákvað ég að reyna að halda uppi þokkalegu afli og sjá hvort ég næði ekki að skola aðeins út sýrunni og jafna mig þó ég væri undir álagi. Þetta gekk bara fínt og ég náði að halda 3,7 w/kg í 33 mínútur (með brekkunni) án þess að ganga alveg fram af mér. Ég kláraði þessar 33 mínútur upp Veigastaðabrekkuna og það tók alveg á en ég var ekkert að stúta mér. Finn allaveg ekki fyrir þessu í dag.

Í dag er veðrið aftur hreinræktuð drulla hérna í Eyjafirði. Ég var að skríða inn úr dyrunum eftir vinnu og ætla að hendast í að setja gamla hjólið á trainer og taka 1,5 - 2 klukkutíma af endurance. Veit ekki alveg hvað ég geri á morgun en mér sýnist að veðrið sé ekkert að skána.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap