Aftur af endurhæfingu

Lukkusteinn úr Atlavík.

Nú reiknast mér til að 80 dagar séu frá því ég flaug á hausinn í Kjarnaskógi og braut á mér viðbeinið. Þetta var vissulega gríðarlegt áfall fyrir mig og ég hefði að sjálfsögðu alveg verið til í að sleppa við þetta. Þetta hafði mikil áhrif á allt sumarið og margt sem ég þurfti að afskrá. En ef ég á að vera jákvæður þá lærði ég ýmislegt á þessu og þetta fór allt betur en ég þorði að vona.

Það sem ég óttaðist mest var að ég yrði hræddur við að hjóla en þetta hafði engin áhrif á það. Eftir að ég byrjaði að hjóla aftur hef ég meira að segja oft staðið mig að því að gera heimskulega hluti og taka óþarfa áhættur. Þannig að ég lærði kannski ekki að fara varlega, jæja.

En ég lærði líka að það þýðir ekkert að leggja árar í bát og ég hélt áfram allan tíman að hreyfa mig eins og líkaminn leyfði. Verkirnir gerðu það hinsvegar að verkum að ég var farinn að óttast að þetta væri ekki að gróa vel. En um leið og ég fékk leyfi frá lækni til að fara að beita mér eitthvað að ráði, þá fóru hlutirnir að gerast hratt.

Núna er ég byrjaður að vinna markvisst í endurhæfingu á skynsaman hátt. Ég geri armbeygjur og upphífingar og byggi rólega ofan á. Svo er sjálfsagt kominn tími á að styrkja magann og mjóbakið. Áðan tók ég 4x8 armbeygjur á tánum og fór svo inn í herbergi og tók 4x5 upphífingar. Sem fyrr finn ég meira fyrir armbeygjunum en upphífingum fylgja engir verkir. 

Álagið í vinnunni í vikunni var gígantísk en ég reyndi að ganga þannig frá málum áðan að ég gæti farið rólegur inn í helgina. Ég ætla ekki að vera með samviskubit út af vinnunni og ég ætla að reyna að einbeita mér að börnunum.

Í morgun fann ég stein í vasanum á buxunum sem ég tók hreinar úr skápnum. Steininn fann ég í Atlavík þegar ég var þar með Hörpu og hún sagði mér að geyma hann í vasanum í svolítinn tíma, það boðaði lukku. Mér finnst vænt um þennan stein og mér finnst vænt um Hörpu. Þetta var fallegt móment. Þetta virkaði sennilega ágætlega því mér varð vel ágengt í vinnunni og líður betur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap