Dagur #57 (New Bike Day)

Tók þessa mynd þegar ég féll kylliflatur fyrir þessu hjóli.

Í fyrradag rakst ég á auglýsingu á FB um að það væru útsöludagar í Útisport. Ég átti eftir að endurnýja hjálminn eftir slysið og ákvað því að fara og kanna málin. Það fyrsta sem ég tók eftir þegar ég kom inn í búðina var hinsvegar Giant TCR Advanced Pro 1 Disc-AXS- í minni stærð. Ég er búinn að liggja yfir þessu hjóli á netinu í heilt ár og láta mig dreyma. En þarna stóð það s.s. og mændi á mig augunum eins og móðurlaus hvolpur í dýraathvarfi.

Eftir að ég rak augun í það ákvað ég að gera það heimskulegasta í stöðunni; að prufa það og spyrja hvort það væri að fara á útsölu. Ég dröslaði hjólinu út og skellti mér einn á hring á því. Þó hnakkurinn hafi verið of lár fyrir mig og ég nennti ekki að láta breyta honum, þá féll ég strax fyrir þessu hjóli og fann hvað það er skuggalega gott að hjóla á því. Einn stærsti munurinn á þessu hjóli og mínu er að ég sit "á" gamla hjólinu mínu en ég sit "Í" þessu hjóli. Mér leið eins og ég væri að skera malbikið eins og smjör með dekkjunum, það liggur svo skuggalega vel.

Þegar ég skilaði hjólinu sagði Egill mér að sofa á þessu og að hann skildi tala við mig daginn eftir og gefa mér verð. Í gær hringdi ég svo í hann og hann gaf mér verð sem var ekki hægt að hafna. Miðað við lagerstöðu á hjólum í heiminum og horfur í efnahagsmálum var einfaldlega ekki hægt að segja nei. En ég er s.s. að fara niður í búð seinnpartinn í dag og ganga frá þessu. Get ekki beðið eftir því að taka snúning á því í kvöld.

Í gær hjólaði ég Eyjafjarðarhring. Ætlaði að vera bara rólegur á því en endaði í hálfgerðu tempo- svona er það þegar maður er ekki með neitt plan, þá er erfiðara að halda sér rólegum. 

Öxlin er aðeins búin að vera að kvarta í gær og í dag og ég reyni að segja mér að það tengist ekkert því að ég sé að hjóla of mikið. Vona að þetta sé bara pirringur út af titan-plötunni en að ég sé ekki að valda mér einhverjum skaða.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap