Dagur #53 og #54

Á Mývatnsheiði með Hörpu.

Þá er alveg geggjaðri helgi lokið og ekki laust við að maður sé sæll og kannski pínu þreyttur. Við Harpa skelltum okkur með börnin í Mývatnssveit á föstudaginn og helgin var því blanda af slökun, ofáti og hjóleríi. Í gær hjóluðum við niður Hólasand, Presthvamma og upp dali heim- og í dag hjóluðum við upp í Víti og kláruðum svo Mývatnshringinn. Ég var býsna sprækur miðað við að hafa ekki hjólað mikið upp á síðkastið en verð að viðurkenna að ég var kominn með nóg þegar við komum í hús í hádeginu. Fyrri dagurinn var 80 km og dagurinn í dag var 67 km með nokkrum krefjandi brekkum.

Við stoppuðum í Dalakofanum í gær og fengum okkur smá orku.

Veðrið var fínt á okkur í gær en í dag var frekar svalt og lítið um blessaða sólina. En það rifjaðist upp fyrir manni á þessum þvælingi afhverju maður er í þessu. Það er svo hrikalega gaman að þvælast svona um á hjóli, sérstaklega þegar veðrið er gott og maður getur stoppað einhversstaðar og keypt sér kaffi og eitthvað sætabrauð. Í Dalakofanum í gær hittum við Gatla, Ara, Markús og Ólaf en þeir voru að éta hádegismat og ætluðu svo að hjóla aftur til Akureyrar.

Vikan á Strava

En þessi fyrsta hjólavika hjá mér í langan tíma endaði bara vel og ég ætla bara að halda áfram á svipuðu róli. En ég finn líka alveg að það verður hvíld hjá mér á morgun. Öxlin er bara svipuð. Ég var hræddur um að ég væri að ganga fram af mér en er bara góður í dag og vonandi heldur þetta bara svona áfram.

Um næstu helgi hendum við trúlega hjólunum upp á bíl og keyrum einhverja styttri túra út úr bænum til að hjóla. Við erum ekki búin að ákveða hvert en það verður væntanlega ekki langt þar sem við ætlum að gista heima á milli.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap