Dagur #52
Úr ævintýraferð gærdagsins. |
Eins og ég var búinn að koma inn á í fyrri póstum þá er ég hættur að æfa eftir ákveðnu plani í bili. Núna er ég bara að hjóla til að njóta, fer út þegar veðrið er gott og mig langar til. Það er mjög frelsandi og miklu skemmtilegra. Það þýðir samt ekki að ég sé ekki að ég sé bara í einhverju dútli. Ég held áfram að keyra á brekkur og taka erfiðar æfingar þegar þannig liggur á en reyni líka að passa mig á því að vera stundum bara rólegur.
Ég er búinn að hjóla alla daga í þessari viku og ég væri að ljúga ef ég segði að öxlin findi ekki eitthvað fyrir því. Ég tók erfiða ferð upp í Hlíðarfjall á þriðjudaginn og var standandi þó nokkur hluta af leiðinni. Það espar upp smá pirring í öxlinni og ég er meðvitaður um að ég þurfi að passa mig og sjálfsagt best að reyna að sitja bara sem mest.
Við Harpa erum að fara með börnin upp í sveit um helgina og að sjálfsögðu tökum við hjólin með. Við sjálfsagt tökum 2-4 klukkutíma á morgun og hinn. Hlakka ekkert smá til og vona að veðrið verði gott.
Ummæli