Dagur #37 🇸🇪
Á leiðinn í pottinn hjá pabba og Hafrúnu. |
Jæja þá erum við komin yfir til Svíþjóðar og lífið leikur við okkur. Í gær var bara slökun heimavið og eins og lög gera ráð fyrir var gert vel við okkur í mat og drykk. Upp úr stendur grillaður kjúklingur á teini sem pabbi reykti á útigrillinunu með airfry-er frönskum og heimagerðu coleslaw. Veðrið var fínt og eftir matinn skelltum við börnin okkur í pottinn.
Í gær tók ég hörku æfingu á þrekhjólinu í hótelinu í DK og það var geggjað. Í morgun ætlaði ég út að hjóla en það var rigning svo ég setti það á hold. Er að hugsa um að henda mér út seinnipartinn eða bíða með það til morguns.
Öxlin er alltaf að verða betri og betri og ég er eiginlega hættur að finna nokkuð fyrir þessu ef ég fer varlega. Núna er ég kominn með þá flugu í höfuðið að fá fjallahjólið hjá Þolla lánað þegar ég kem upp til Västerås og finna mér einhverja brekku til að taka smá puð æfingu. Það hlýtur að vera í lagi ef ég passa mig á að fara ekki hratt.
Ummæli