Dagur #10 - Aðgerðardagur

 
Viðbeinsbrot- mitt brot er lateral, þ.e. nær liðnum.

Jæja þá er stóri dagurinn runnin upp. Ég er verri í brotinu í dag miðað við síðustu daga og hlakka til að koma þessu frá- þó það sé náttúrulega pínu stress í manni. Það verður væntanlega gerður langur skurður eftir öxlinni og títanplata skrúfuð ofaná beinið. Ég er búinn að skoða slatta af myndum af svona aðgerðum og þetta er svolítið brútal.

Ég vaknaði klukkan 7 í morgun er í rauninni bara að bíða eftir að klukkan slái 08:30 svo ég geti farið að rölta niður á spítala. Ég steig á vigtina í morgun og er ennþá í sömu þyngt og þegar slysið átti sér stað- keppnisþyngd. Maður er sjálfsagt búinn að missa smá vöðvamassa en aðalatriðið að maður sé ekki að hlaða á sig sjálfsvorkunarkílóum.

Halldóra kemur og tekur börnin og tíkina hérna á eftir og ég vonandi fæ smá tíma einn til að jafna mig eftir að ég kem heim. Mest hlakka ég til að borða og fá kaffi en ég er náttúrlega fastandi.... sem er skelfilegt.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap