Skin og skúrir

Svona er veðrið um kvöldmat hér á Akureyri.

Það var búið að spá ágætis veðri hérna á Akureyri í dag og það gekk svona nokkurnveginn eftir. Ég fór út og tók æfingu eftir vinnu og þegar ég var kominn langleiðina upp í skíðahótel þá var orðið þungbúið og mér fannst ég sjá eina hvíta flyksu. Þetta slapp allt til en núna er farið að mokhríða og spáin fyrir morgundaginn ekkert spes. En ég var allavega feginn að hafa klárað æfinguna í tæka tíð.


Power file úr Trainingpeaks.

Ég kalla æfinguna sem ég var að taka Trevor's 5x5 eftir Trevor Connor hjá Fast Talk Laboratories. Þetta er æfing sem miðar að því að láta mann vera á threshold (FTP) í 5 mínútur og fá bara eina mínútu í hvíld á milli. Þetta er reyndar meiri "base season" æfing en ég hef tekið hana stundum og finnst hún góð. Ég reyni svo líka að taka lengri threshold æfingar líka, t.d. 2x20 og 3x16- sem er ca. 2,5x upp í skíðahótel.

Þar sem ég hef ekki mikið vit á því sem ég er að gera í þessum æfingum þá reyni ég bara að fókusera á heildarmyndina sem er að hjóla mikið á Z2 (aerobic endurance) og strá svo af handahófi intensity æfingum inn í (threshold, tabata, VO2max osfv.).

Annars er ég kominn í smá bobba með Íslandsmeistaramótið því það er held ég orðið alveg ljóst að ég þarf að fara til Finnlands á fundi og vera þar ca. í 5 daga. Það er bara tvennt í stöðunni: taka með hjólið eða reyna að leigja hjól þarna úti. Þetta er í skoðun og mun reddast. Það sem kemur ekki til greina er að fara ekki á hjól í marga daga og detta svo beint inn á erfiðasta mót ársins.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap