Sígur á seinni hlutann á fínni helgi.
Samhjól HFA - 08.05.2022. |
Ég hef verið að reyna að gleyma vinnunni um helgina og það hefur gengið svona upp og niður. Harpa er búin að vera að vinna á milli kl. 15:00 og 23:00 en við höfum nú alveg náð að bralla eitthvað. Við skelltum okkur út að hjóla í gær og kíktum svo í bakarí og búðir. Skarphéðinn er í bænum og ég bauð honum í grill í gærkvöldi og við náðum mjög góðu spjalli
Ég og Harpa með hópnum. |
Í dag var samhjól hjá HFA og við Harpa skelltum okkur að sjálfsögðu í það. Harpa þurfti svo að halda áfram og klára sína æfingu en ég kíkti með góðu fólki á Bláu könnuna þar sem við skipulögðum ævintýri sumarsins og ræddum daginn og veginn. Annars var túrinn fínn og þegar hraðinn var keyrður upp á leiðinni heim þá lét ég mig bara dragast aftur úr fremsta hópi. Það er hvíldarvika hjá mér og ég á erfiða æfingu á þriðjudaginn og ég ákvað að láta egóið ekki rugla í plönunum hjá mér. Hópurinn sameinaðist aftur í Hrafnagili og þaðan héldum við þægilegum hraða í bæinn.
Nú er ég kominn heim, búinn að éta og fara í bað. Síðan hellti ég uppá og er kominn í sófann og búinn að stilla á Giro d'Italia. Það eru 95 km. eftir og ég er að hugsa um að klára það áður en ég þríf hjólið og fer að dúllast í húsverkum.
Ummæli