Örstutt skeyti úr snænum.

Hjalteyri á sunnudaginn.

Það fór að snjóa hjá okkur hérna fyrir norðan aftur og fyndið hvað fólk verður alltaf hissa. Stundum mætti halda að fólk gleymi því hvar við búum. Ég hafði rétt fyrir mér með það að við fengum klassískan sumar-apríl kafla en það má alltaf bóka allavega eitt gott hret í maí. Spáin er reyndar ágæt fyrir morgundaginn og það stefnir því í að maður geti kíkt út að hjóla á morgun. Og svo hugsa ég líka að maður hjóli úti á laugardaginn en annars er bara hvíld þessa viku.

Annars er ég búinn að vera mjög druslulegur eftir helgina. Á sunnudaginn fórum við í samhjól sem átti að vera rólegt en endaði í tómu bulli eins og venjulega. Mánudagurinn var s.s. allt í lagi en í gær tók ég 2 tíma æfingu inni. Ég var frekar þreyttur í gærkvöldi og er búinn að vera í frekar slæmu formi í dag.

Mér finnst þetta bæði vera andlegt og líkamlegt og ég næ ekki að greina hvort þetta er út af æfingum eða hvort þetta tengist stressi í vinnunni? Hvort þetta er of mikið kaffi og of lítið vatn? Hvort ég sé ekki búinn að borða nægilega vel? En hvað sem veldur þá er ég allavega kominn með einhverja punkta sem ég get reynt að hafa áhrif á og sjá hvort ég verði ekki kominn í fínt form fyrir helgina.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap