Meira fjall⛰
Uppi í skíðahóteli í gær. |
Nú eru fjórir dagar í mót og ég er búinn að reyna að stilla æfingaprógramið af miðað við það. Í gær hjólaði ég þrisvar upp í skíðahótel og er það í fyrsta skipti sem ég fer svo oft í röð. Ég var aðeins farinn að missa dampinn í síðustu umferðinni og hélt ekki alveg sömu vöttum og í fyrri ferðunum. En ég var ánægður með hvað ég var fljótur að jafna mig og var í rauninni ekkert þreyttur eftir þetta. Í dag tók ég klukkutíma rólega endurheimt (25 km) og mér leið bara ótrúlega vel. Á morgun er svo 2 tíma endurance og svo 1,5 klst á fimmtudaginn með nokkrum sprettum til að koma fótunum í gang.
Ég held að ég sé að verða kominn í þokkalegt keppnisform en það hefur þó alveg vantað síðustu vikur að ég nái 4-5 klst endurance æfingum. Mér finnst eins og ég hafi verið með meira "punch" í mér í fyrra en ég held að formið sé orðið miklu betra. Ég get hjólað dag eftir dag og næ alltaf að jafna mig á milli. Eins get ég tekið erfiða brekkuspretti en svo haldið áfram að hjóla lengi eftir það án þess að vera alveg flatur. Það verður spennandi að sjá hvernig manni gengur í Grindavík. Þar eru brekkur sem ég ætla að reyna að nýta mér. Ég veit að það er alveg fullt af gaurum þarna sem eru hrikalega sterkir en ég geri mitt besta.
Svo er reyndar alveg ótrúlegt hvað maður er brattur miðað við álagið í vinnunni. Ég ætla ekki að fara mikið út í það en ég er á taugum alla daga og alltaf með hugann við vinnuna. Þetta er ótrúlega óþægilegt og ekki eitthvað sem ég gæti hugsað mér til lengri tíma. Vonandi kemst maður í gegnum þennan erfiða tíma og stendur sterkari á eftir.
Áfram veginn
Ummæli