Góð vika að baki

Góð vika að baki. Hæðartalan er 2500 metrum of há.

Nú er bara ein heil æfingavika eftir fram að næsta móti og mun hún líta út svipað og þessi vika. Ég er ánægður með vikuna, sérstaklega að hafa bara þurft að taka 1 æfingu inni. Stóra myndin í vikunni er slatti af endurance og 2 erfiðari æfingar. Sú fyrri var rúntur með Hörpu sem endaði sem threshold æfing og svo Tabata-æfing sem ég tók inni. 

Í morgun fórum við Harpa í samhjól og miðað við að þetta var dagur númer 5 í röð þá var ég bara ferskur. Ég var góður í fótunum en fann samt í brekkunum að það vanti smá snerpu. Það er líklega merki um að gott sé að hvíla á morgun. 

Annars var helgin bara frábær. Við Harpa áttum yndislegan laugardag þangað til hún fór að vinna. Við fórum að kjósa, út að borða og kíktum í Útisport að skoða hjól og kaupa eitthvað smotterí. Í gærkvöldi kíkti ég aðeins með Þórði út og svo horfðum við Harpa aðeins á kosningasjónarvarpið.

Eftir samhjólið í dag fór þurfti ég reyndar að fara í vinnuna og undirbúa vikuna. Það er óþægilega mikið að gera og ég er frekar stressaður út af því. Vonandi fer það að lagast svo maður nái að slaka eitthvað á í sumarfríinu.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap