Endurance í hríð
Að græja mig upp í vetrarhjólreiðar. |
Það var búið að spá skítadrulluveðri alla vikuna og maður reiknaði því ekki með að fara út að hjóla þessa vikuna. En við Harpa skelltum okkur á mánudaginn og svo fór ég vel áleiðis út á Grenivík í gær, samtals 60 km- það var skárra en ég bjóst við. Í dag er ég að spá í að taka klukkutíma recovery og hugsa að ég fari þá bara einn þó Harpa fari sennilega líka út. Of margar æfingar hjá mér hafa farið úr skorðum upp á síðkastið þegar ég er að hjóla með einhverjum öðrum sem eru að gera eitthvað allt annað en ég á að vera að gera.
Þó það sé ekki spennandi að hjóla úti þessa síðustu daga þá finnst mér það eiginlega skárra heldur en að fara inn aftur. Í gær var þurrt á mér og það bjargaði miklu. En þegar ég kom heim eftir rúma 2 tíma var ég reyndar orðinn svolítið kaldur á tánum. En þetta snýst um að búa sig vel.Vetrarhjólabuxur, síðerma bolur, góður hjólajakki, vettlingar, buff um hálsinn, buff yfir eyrun og passa sig á að hafa nóg með að borða. Ég finn ótrúlegan mun á því hvað ég þarf að passa mig vel á að næra mig þegar það er kalt.
Endurance-æfing gærdagsins |
Annars gekk endurance æfingin í gær mjög vel og ég var að einbeita mér að halda mig í 190-200 W sem á fræðimáli er ca. Z2 hjá mér. Ef maður ætlar að gera þetta vel snýst þetta um að láta sig aldrei fríhjóla niður brekkur heldur gíra í þyngri gír og halda jöfnum vöttum. Stoppa helst ekki neitt og þá á þetta að síga í eftir því sem á líður. Ég hef tröllatrú á þessum æfingum og stefni að því að ná einni svona fjögurra tíma áður en vikan er liðin.
Í gær var ég mjög sprækur og leið vel allan tímann. Var með 203 W í normalized power og var eiginlega ekkert farinn að þreytast.
Ummæli