|
Það dettur inn einn og einn góður dagur- sumarið nálgast. |
Þessi vika leit ekki vel út á tímabili og ég verð að viðurkenna að ég var hreinlega kominn með líkamleg einkenni af stressi. Ofan á mikið flækjustig við að halda heimilinu á floti og skipuleggja allt í kringum hjólamótið, þá var allt að sigla strand í ákveðnu verkefni í vinnunni. Eftir hitafund í gær og mjög erfiða ákvörðun, þá létti samt aðeins af mér. Svo maður noti klisjulegt líkindamál, þá komum við skipinu tímabundið í var og nú fáum við smá tíma til að ná vopnum okkar aftur og endurskipuleggja.
Þegar ég kom heim í gær var ég í spennufalli og það endaði með að ég lagðist upp í rúm og dottaði í 20-30 mínútur. Eftir það leið mér betur, græjaði svo mat og tók börnin til fyrir ferð í Mývatnssveit. Ég hafði ekki tíma til að byrja að hjóla fyrr en rúmlega átta og þar sem það var skítaveður ákvað ég að setja hjólið á inniriðilinn. Síðan náði ég rúmlega 8 tíma svefni og þetta horfir allt til betri vegar. Ég ætlaði að vera í fríi á morgun en ég slepp ekki alveg og þarf að taka allavega einn fund.
|
Endurance æfingin í gær var fín. |
Æfingin í gær gekk svo bara vel. Ég valdi mér bara flata braut og reyndi að vera á 160 - 190 vöttum og var á 120 - 130 púls (Z2). Þetta var tveggja tíma æfing og ég fór einhverja 70 km. Harpa fór út að hjóla í morgun en ég var bara ekki í stuði fyrir að fara út í 5°C og rigningu- hún er nagli. Aðalega vegna þess að ég nennti ekki að þrífa hjólið eftir það. Eftir hádegi ætla ég að taka ca. klukkutíma rólegt (inni) með 5x20 sekúndna sprettum og svo hvíla á morgun. Við reyndar tökum sennilega smá rúnt í Grindavík annað kvöld ef það rignir ekki.
Annars ætla ég að hafa frekar rólegan dag og taka mig til fyrir mótið. Ég þarf aðeins að þrífa keðjuna, fínstilla gírana og dunda mér eitthvað. Harpa er að fara að vinna í kvöld og ég hugsa að ég reyni að finna mér eitthvað gott að borða og taka gláp.
Ummæli