Sumar 🌞

Djúpt inní Eyjafarðardal

Þessi dagur er búinn að vera svo geggjaður að það hálfa væri nóg. Mikið sem það getur glatt mann að fá gott veður og það skemmir ekki fyrir að það hitti á sumardaginn fyrsta. Ég vaknaði kl. 07:00 í morgun og svolgraði í mig hafragraut með eggi og tók svo lögbundinn fréttahring á netinu og drakk rótsterkt kaffi. Hitti svo Hörpu rétt fyrir klukkan 09:00 og við brunuðum niður í Hof. Þar söfnuðust ca. 30 hjólarar saman sem við hjóluðum svo með fram að Grund. Þar var myndataka og svo héldu flestir áfram inn að Smámunasafni. Við vorum svo nokkur sem kláruðum alveg út að malbiksenda áður en við héldum aftur í bæinn.

Þegar við komum í bæinn var svo grill-party heima hjá Stebba og Sigrúnu og meirihlutinn af fólkinu mætti þangað, át pylsur og baðaði sig í sólinni. Ég er nú ekkert voðalega fær í því að mingla við fólk en náði alveg að kynnast nýju fólki núna og spjalla sem var mjög gefandi og gaman.

Eftir það fór ég svo heim í bað, fékk mér að éta og fór í vinnuna að reyna að vinna af mér fyrir morgundaginn.

En túrinn gekk vel þó ég hafi keyrt harðar á þetta en ég ætlaði. Það er bara ekki hægt að fara í svona samhjól án þess að enda einhverstaðar fremst þar sem hraðinn er mikill. Það hleypur alltaf kapp í mann og maður vill ekki dragast aftur úr. En ég er bara sprækur eftir þetta og ætla að taka rólegt recovery á morgun. Ég er kominn upp í 122 km. í tveimur túrum í þessari viku og enda sjálfsagt einhverstaðar í kringum 300 km. Svo þarf ég að fara að stilla af næstu viku þannig ég verði vel upplagður í keppnina í Sandgerði um næstu helgi.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap