Over/Under

Við Harpa á leiðinni út að Víkurskarði.

Það var over/under æfing hjá mér í dag og þar sem veðrið heldur áfram að leika við okkur þá var ekki annað hægt en að taka hana úti. Harpa var líka með sprettæfingu og því ákváðum við að fara í Víkurskarðir. Það er mjög erfitt að taka svona æfingar þar sem eru beygjur, umferð og gatnamót. Og maður þarf helst að vera í brekku til að ná vöttunum upp án þess að vera kominn á mígandi siglingu og farinn snúa pedölunum á milljón.

Æfingin sem ég var að taka myndi kallast Yfir/Undir á íslensku og hefur alveg sérstakan tilgang:

Over-under intervals improve your ability to shuttle and buffer lactate near the boundaries of your threshold power. Improving these capabilities will increase your anaerobic capabilities allowing you to output higher power values with greater efficiency and less mental fatigue.

- Trainerroad

Ég hef verið að gera þessa æfingu á inniriðlinum og var ekki alveg viss hvernig myndi ganga að gera þetta úti en það gekk bara djöfulli vel.

Æfing dagsins úr Trainingpeaks.

Á myndinni sést hvernig ég náði að fylgja æfingunni. Skyggða svæðið á bakvið eru vöttin sem ég átti að keyra á en bleika línan vattakúrfan sem aflmælirinn á hjólinu mældi. Reyndar er eitthvað smá klikk í þessu og vantar aðeins í lokin á æfingunni (engin bleik lína). Restin sem kemur eftir skyggða svæðið eru svo heimleiðin.

Annars er það að frétta að mér finnst formið orðið djöfull gott og ég er að halda miklu hærri vöttum úti heldur en ég var að gera á Zwift. Ef ég ætla að halda áfram að keyra á svona æfingar úti þá þarf ég eiginlega að taka FTP test úti með vattapedölunum því ég gæti alveg verið að fá meira út úr æfingunum. 

Á morgun ætlum við svo að faraí samhjól til Grenivíkur með fullt af fólki og spáin er góð☀️

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap