Ok það er kominn 9°C hiti úti!
Gráni mættur á gula vegginn. |
Ok, nú er komið drullu ásættanlegt veður hérna á Akureyri. Nú er ég búinn að rífa hjólið af inniriðlinum og er að fara að taka mig til fyrir einn Eyjafjarðarhring á eftir. Guðrún fékk börnin lánuð næstu 2 daga og ég því ekki með nein önnur plön en að hjóla úti. Spáin er dýrðleg og ég ætla að njóta þess í botn að komast út.
Á laugardaginn fer ég svo austur í sveit með börnin og við ætlum að eiga notalega stund með fólkinu þar og halda upp á afmælið hennar Dagbjartar Lóu. Daman er að að fylla 7 árin.
Braut og hæðarkort af Reykjanesmótinu. |
Nú er búið að auglýsa fyrsta bikarmótið sem fer fram á Reykjanesi 30. apríl. Ræst verður í Sandgerði og hjólað að Sandvík, og svo til baka. Þetta verða 69 km. og hækkun í heildina ekki nema 308 metrar. Svona marflatar brautir henta léttum stubbum eins og mér afskaplega illa en ég mun gera mitt besta. Hækkunin í stærri brekkunni er ekki nema um 40 metrar og því verður hún valla mikil fyrirstaða fyrir stærri og þyngri hjólara. En væntanlega verður keyrslan upp þessar brekkur mikil til að reyna að slíta hópinn í sundur. Þá verður maður að reyna að hanga í.
Ég get alveg viðurkennt að það er kominn fiðringur í mig út af þessu- og eins og fyrir hin mótin, þá er ég stressaður. Ég veit líka að í þessu móti verður mjög hörð keyrsla og miklu sterkari hjólarar heldur en ég hef att kappi við áður. Að ferðast um á kannski 40 km. hraða í kássu af öðrum hjólurum er ekki alveg laust við að vera hættulegt- og ég er meðvitaður um það að það er ekkert ólíklegt að ég muni krassa einhverntíman í sumar. En maður verður bara að reyna að vera skynsamur og meðvitaður um að það borgar sig ekkert að vera að taka einhverjar óþarfa áhættur. Þá er frekar betra að vera einhverjum sætum neðar og koma heill heim.
Ummæli